{"id":1002,"date":"2026-01-07T22:51:22","date_gmt":"2026-01-07T22:51:22","guid":{"rendered":"https:\/\/seldalur.vefir.net\/kerling\/?p=1002"},"modified":"2026-02-22T13:17:41","modified_gmt":"2026-02-22T13:17:41","slug":"bjarni-halldor-bjarnason-fra-gerdisstekk","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/2026\/01\/07\/bjarni-halldor-bjarnason-fra-gerdisstekk\/","title":{"rendered":"Bjarni Halld\u00f3r Bjarnason fr\u00e1 Ger\u00f0isstekk"},"content":{"rendered":"\n<h2 class=\"wp-block-heading\">\u00dar sv\u00f6rum vi\u00f0 Spurningaskr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0minjasafns<\/h2>\n\n\n\n<p>Bjarni var f\u00e6ddur \u00e1 Ger\u00f0isstekk \u00ed Nor\u00f0fjar\u00f0arhreppi 1.10. 1921, einn af ellefu b\u00f6rnum Bjarna Sigf\u00fassonar fr\u00e1 Bar\u00f0snesi og Halld\u00f3ru J\u00f3nsd\u00f3ttur fr\u00e1 Ger\u00f0isstekk. Minningarbrotin sem hann deilir me\u00f0 okkur eru fengin \u00far sv\u00f6rum hans vi\u00f0 spurningaskr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0minjasafns. A\u00f0 mestu er textinn fenginn beint fr\u00e1 honum.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>H\u00fasakynni \u00e1 Ger\u00f0isstekk me\u00f0 or\u00f0um Bjarna Halld\u00f3rs&nbsp; (Halla \u00e1 Ger\u00f0isstekk)<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>H\u00fasi\u00f0 var timburh\u00fas, ein h\u00e6\u00f0 og ris um 90 fm a\u00f0 st\u00e6r\u00f0 me\u00f0 dyrask\u00far og b\u00edslagi, sem kalla\u00f0 var (\u00fatigangur). \u00dar dyrask\u00far var gengi\u00f0 inn \u00ed l\u00edtinn gang og \u00far honum beint \u00e1fram inn \u00ed bor\u00f0stofu. \u00dear voru bor\u00f0, st\u00f3lar og kolaofn. Til h\u00e6gri var gengi\u00f0 inn \u00ed l\u00edti\u00f0 herbergi og \u00fea\u00f0an inn \u00ed st\u00e1ssstofu, \u00fear var l\u00edka kolaofn, einn \u00feessi st\u00f3ri h\u00e1i. \u00dear voru l\u00edka bor\u00f0 og st\u00f3lar, \u00e9g man n\u00fa ekki hve f\u00ednt \u00feetta var, en \u00fear var l\u00edka f\u00ednn sk\u00e1pur. \u00cd honum var geymt leirtau og anna\u00f0 f\u00edner\u00ed. \u00dear var betrekk \u00e1 \u00feiljum, timburg\u00f3lf hv\u00edtsk\u00fara\u00f0 og m\u00e1la\u00f0 loft.<\/p>\n\n\n\n<p>Inni \u00ed st\u00e1ssstofu voru dyr til vinstri. \u00dear var sm\u00e1 forstofa og \u00fea\u00f0an h\u00e6gt a\u00f0 ganga beint inn \u00ed st\u00e1ssstofu \u00feegar gestir komu. Til vinstri \u00ed forstofu var l\u00edka sm\u00e1 gestaherbergi.<\/p>\n\n\n\n<p>Til vinstri \u00feegar ma\u00f0ur kom inn \u00far innra gangi, voru dyr inn \u00ed eldh\u00fasi\u00f0. \u00dar eldh\u00fasi var stigi upp \u00e1 loft. \u00cd eldh\u00fasi var kolaeldav\u00e9l me\u00f0 reykh\u00f6tt yfir, eldh\u00fasbekkur sem kalla\u00f0 var me\u00f0 sk\u00e1pum, \u00fear \u00ed \u00e1h\u00f6ld og rekki fyrir bolla og diska. Inn af eldh\u00fasi var b\u00far.<\/p>\n\n\n\n<p>Uppi \u00e1 lofti voru \u00ferj\u00fa herbergi, tv\u00f6 l\u00edtil og salur sem kalla\u00f0 var. \u00dea\u00f0 var st\u00f3rt herbergi, sem var h\u00e1lft lofti\u00f0. \u00dear var l\u00edtill kolaofn og \u00fear sv\u00e1fu allir \u00feegar \u00e9g man fyrst eftir m\u00e9r, en \u00fea\u00f0 breyttist svo \u00feegar b\u00f6rnin st\u00e6kku\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>\u00c1h\u00f6ld til heimilishalds og vatnsb\u00faskapur<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>T\u00e6ki voru engin nema eldav\u00e9l og kolaofnar og \u00feessi venjulegu matrei\u00f0slu\u00e1h\u00f6ld. \u00cd innri gangi var gluggi til vinstri og \u00fear undir var bekkur \u00fear sem vatnsfatan var geymd. Vatn var bori\u00f0 \u00ed h\u00fas \u00far l\u00e6knum og sk\u00f3lp \u00fat, \u00feanga\u00f0 til \u00e9g var t\u00edu \u00e1ra gamall. \u00de\u00e1 var l\u00f6g\u00f0 vatnslei\u00f0sla \u00ed h\u00fasi\u00f0 og fr\u00e1rennsli og \u00fe\u00e1 kom eldh\u00fasvaskur. Um sama leiti kom skilvinda og handsn\u00fainn strokkur en \u00e1\u00f0ur var mj\u00f3lkin l\u00e1tin \u00ed trog og svo var fleitt ofanaf (rj\u00f3minn) og strokka\u00f0 \u00ed tr\u00e9strokk (bullustrokk)<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>\u00derif<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>M\u00f3\u00f0ir m\u00edn anna\u00f0ist allan \u00ferifna\u00f0. \u00cd minni sveit var venjulega sk\u00fara\u00f0 eldh\u00fas og bor\u00f0stofa jafnvel \u00e1 hverjum degi og ytri stofan h\u00e1lfs m\u00e1na\u00f0ar e\u00f0a m\u00e1na\u00f0arlega, e\u00f0a eftir \u00fe\u00f6rfum. En \u00fea\u00f0 var alltaf allt h\u00fasi\u00f0 gert hreint fyrir j\u00f3l og svo \u00e1 vorin. Til \u00feess voru nota\u00f0ar skj\u00f3lur, skrubbur, tuskur og s\u00e1pa, a\u00f0allega svok\u00f6llu\u00f0 gr\u00e6ns\u00e1pa.<\/p>\n\n\n\n<p>M\u00f3\u00f0ir m\u00edn s\u00e1 um allan \u00fevott, \u00fea\u00f0 var allt \u00fevegi\u00f0 \u00e1 bretti og so\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 sem m\u00e1tti sj\u00f3\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p>Skift var \u00e1 r\u00famum, \u00e9g man n\u00fa ekki hvort \u00fea\u00f0 var h\u00e1lfs m\u00e1na\u00f0ar e\u00f0a m\u00e1na\u00f0arlega. \u00de\u00e1 skiftu allir um n\u00e6rf\u00f6t um lei\u00f0 en um ytri fatna\u00f0 eftir \u00fe\u00f6rfum. Mamma \u00fevo\u00f0i pl\u00f6ggin (ullarsokkana) af okkur og ger\u00f0i vi\u00f0 le\u00f0ursk\u00f3na \u00e1 hverju kv\u00f6ldi.<\/p>\n\n\n\n<p>Mig minnir a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 hafi fari\u00f0 \u00ed allsherjar ba\u00f0 fyrir allar h\u00e1t\u00ed\u00f0ir og svo \u00feegar fari\u00f0 var \u00e1 skemmtanir e\u00f0a eitthva\u00f0 st\u00f3\u00f0 til. Menn f\u00f3ru \u00fe\u00e1 bara \u00ed st\u00f3ra balann. Vi\u00f0 krakkarnir vorum b\u00f6\u00f0u\u00f0 \u00far bala um hverja helgi og kembd og greidd \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var alltaf l\u00fas \u00e1 fer\u00f0inni<\/p>\n\n\n\n<p>\u00feanga\u00f0 til \u00e9g var kominn fram undir fermingu en \u00fe\u00e1 var fari\u00f0 a\u00f0 bera ol\u00edu \u00ed hausinn \u00e1 okkur. \u00de\u00e1 hvarf l\u00fasin alveg.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g held a\u00f0 h\u00e9r \u00ed minni sveit hafi aldrei veri\u00f0 sp\u00edtt \u00e1 g\u00f3lf og menn hafi \u00ferifi\u00f0 sig vel, \u00fevegi\u00f0 og kembt og h\u00e9r var alltaf gott heilsufar.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Matarger\u00f0 og m\u00e1lt\u00ed\u00f0ir<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>H\u00fasm\u00f3\u00f0irin s\u00e1 um matarger\u00f0ina, en vi\u00f0 hj\u00e1lpu\u00f0um au\u00f0vita\u00f0 til, a\u00f0allega systur m\u00ednar inni og vi\u00f0 br\u00e6\u00f0urnir \u00fati. N\u00fa ef vi\u00f0 t\u00f6kum viku, skiptist h\u00fan svona. M\u00e1nudagur; kaffi, mj\u00f3lk og brau\u00f0 \u00ed morgunmat, kannski grautur klukkan t\u00edu, h\u00e1degismatur klukkan eitt. \u00de\u00e1 var venjulega so\u00f0inn fiskur n\u00fdr e\u00f0a salta\u00f0ur. Kaffi klukkan fj\u00f6gur og me\u00f0 \u00fev\u00ed brau\u00f0, sl\u00e1tur, r\u00fagbrau\u00f0 og hveitibrau\u00f0 e\u00f0a siktibrau\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 var kalla\u00f0. \u00deri\u00f0judagur \u00fea\u00f0 sama og einnig fimmtudagur, f\u00f6studagur og laugardagur. Mi\u00f0vikudagurinn \u00fea\u00f0 sama, nema \u00fdmiskonar kj\u00f6t \u00ed h\u00e1degi og afgangurinn a\u00f0 kv\u00f6ldi. \u00c1 sunnud\u00f6gum var kj\u00f6t \u00ed h\u00e1degi og kv\u00f6ldmat og venjulega eitthva\u00f0 betra me\u00f0 kaffi. \u00c1 vetrum var venjulega har\u00f0fiskur, h\u00e1karl og s\u00farmatur \u00ed kv\u00f6ldmat. Matar\u00e6\u00f0i breyttist ekkert fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g man eftir m\u00e9r \u00feanga\u00f0 til \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 heiman.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Vetrarfor\u00f0inn <\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var alltaf gert \u00ed haginn fyrir veturinn, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 s\u00e6kja allt \u00ed b\u00fa\u00f0 yfir fj\u00f6r\u00f0inn. Mj\u00f6lvara var \u00fe\u00e1 \u00ed fimmt\u00edu k\u00edl\u00f3a pokum. \u00c1 haustin voru keyptir fleiri mj\u00f6lpokar, hveiti, r\u00fagmj\u00f6l, haframj\u00f6l, sykur og jafnvel sveskjur og r\u00fas\u00ednur l\u00edka. Einnig voru keyptar tv\u00e6r til \u00ferj\u00e1r steinol\u00edutunnur og \u00ferj\u00fa til fj\u00f6gur tonn af kolum \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var varla fari\u00f0 \u00ed kaupsta\u00f0 nema fyrir j\u00f3lin. \u00dea\u00f0 var miki\u00f0 hert af fiski og \u00fea\u00f0 var verka\u00f0ur h\u00e1karl. \u00dea\u00f0 var n\u00f3g af \u00feessu, \u00fev\u00ed vi\u00f0 rerum \u00e1 sumrum. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um f\u00e9 og \u00fea\u00f0 var salta\u00f0 \u00ed \u00ferj\u00e1r til fj\u00f3rar tunnur af kj\u00f6ti og \u00fea\u00f0 var alltaf skoti\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 af fugli. Einnig var so\u00f0i\u00f0 sl\u00e1tur \u00ed einar \u00ferj\u00e1r til fj\u00f3rar tunnur. Kart\u00f6flur voru r\u00e6kta\u00f0ar til \u00e1rsins og svol\u00edti\u00f0 t\u00ednt af fjallagr\u00f6sum. \u00dea\u00f0 \u00feurfti miki\u00f0 til \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 vorum \u00ferett\u00e1n \u00ed fj\u00f6lskyldunni fyrir utan afa og \u00f6mmu \u00e1 me\u00f0an \u00feau lif\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>L\u00e6knis\u00fej\u00f3nusta og heilsufar<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var l\u00e6knir \u00ed Neskaupsta\u00f0 (fr\u00e1 1913) og lj\u00f3sm\u00f3\u00f0ir. L\u00e6knis var sjaldan vitja\u00f0 \u00fev\u00ed heilsufar var venjulega gott, en lj\u00f3sm\u00f3\u00f0ur \u00fev\u00ed oftar \u00fev\u00ed \u00fearna voru \u00e1tta til t\u00f3lf krakkar \u00e1 hverjum b\u00e6. \u00c9g man varla eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri s\u00f3ttur l\u00e6knir, en lj\u00f3sm\u00f3\u00f0irin \u00feegar b\u00f6rn voru a\u00f0 f\u00e6\u00f0ast.<\/p>\n\n\n\n<p>M\u00e6\u00f0urnar s\u00e1u um ef einhver meiddi sig. \u00dea\u00f0 var venjulega til lysoljo\u00f0 og perubalsam \u00far ap\u00f3teki til \u00feess a\u00f0 bera \u00e1 s\u00e1r og mamma \u00e1tti alltaf s\u00f3tthreinsa\u00f0ar tuskur til a\u00f0 binda um s\u00e1r me\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Umgangspestir gengu h\u00e9r eins og mislingar, flensa, rau\u00f0ir hundar, kvef, hlaupab\u00f3la og k\u00edkh\u00f3sti. \u00deetta gekk allt saman og \u00fea\u00f0 lag\u00f0ist kannski megini\u00f0 af fj\u00f6lskyldunni og \u00fev\u00ed var teki\u00f0 me\u00f0 jafna\u00f0arge\u00f0i. \u00deeir unnu st\u00f6rfin sem uppi st\u00f3\u00f0u og \u00feegar \u00feeir f\u00e9llu \u00fe\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir vi\u00f0 sem voru farnir a\u00f0 hressast. \u00c9g man ekki eftir a\u00f0 neinn d\u00e6i \u00far \u00feessum pestum. F\u00f3lk var au\u00f0vita\u00f0 hr\u00e6tt vi\u00f0 veikindi og vildi for\u00f0ast umgangspestir. \u00dea\u00f0 var reynt a\u00f0 hafa ekki mikinn samgang vi\u00f0 kaupsta\u00f0inn e\u00f0a milli b\u00e6ja, en \u00feetta kom samt alltaf og \u00fe\u00e1 var bara a\u00f0 taka \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Dreymt fyrir dagl\u00e1tum<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>Mig dreymdi \u00feennan draum \u00feegar \u00e9g var fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1ra. \u00de\u00e1 bar svo vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 rak hval \u00ed Sandv\u00edk sem er vi\u00f0 Gerpi og \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 til a\u00f0 vi\u00f0 str\u00e1karnir f\u00e6rum yfir fjall til Sandv\u00edkur daginn eftir til a\u00f0 sko\u00f0a hvalinn. \u00de\u00e1 dreymir mig \u00fea\u00f0 um n\u00f3ttina, a\u00f0 \u00e9g er eitthva\u00f0 a\u00f0 va\u00f0a \u00ed fj\u00f6runni \u00ed lendingunni okkar. \u00de\u00e1 ske\u00f0ur \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 b\u00edtur sig krabbi fastan \u00e1 vinstra hn\u00e9\u00f0 \u00e1 m\u00e9r. \u00c9g segi m\u00f3\u00f0ur minni \u00feennan draum og h\u00fan segir &#8220;\u00feetta er ekki g\u00f3\u00f0ur draumur\u201d. Svo f\u00f3rum vi\u00f0 til Sandv\u00edkur daginn eftir og \u00fe\u00e1 ske\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 erum a\u00f0 sko\u00f0a hvalinn, a\u00f0 \u00e9g tek lj\u00e1 sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u til a\u00f0 skera hann, er eitthva\u00f0 a\u00f0 vingsa honum til og hann lendir \u00ed vinstra hn\u00e9\u00f0 \u00e1 m\u00e9r og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur fj\u00f6gurra sentimetra s\u00e1r \u00e1 hn\u00e9nu. \u00c9g \u00e1tti \u00ed \u00feessu \u00ed heilt \u00e1r. \u00dea\u00f0 gr\u00f3f \u00ed \u00f6llu saman og hef \u00e9g eiginlega aldrei or\u00f0i\u00f0 g\u00f3\u00f0ur \u00ed hn\u00e9nu s\u00ed\u00f0an.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Vinna fr\u00e1 fimm til t\u00edu \u00e1ra aldri.<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>\u00c9g byrja\u00f0i a\u00f0 reka k\u00fdr og s\u00e6kja sex til sj\u00f6 \u00e1ra gamall og sn\u00faast \u00fdmislegt. \u00dea\u00f0 l\u00e9tti undir me\u00f0 fullor\u00f0na f\u00f3lkinu.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 br\u00e6\u00f0ur byrju\u00f0um a\u00f0 fara og vitja um net \u00e1tta til n\u00edu \u00e1ra og byrju\u00f0um a\u00f0 fara \u00e1 sj\u00f3 \u00e1 handf\u00e6ri n\u00edu til t\u00edu \u00e1ra.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd minni sveit f\u00f3ru b\u00f6rn a\u00f0 vinna strax og \u00feau g\u00e1tu. A\u00f0 reka beljur, gefa h\u00e6nsnum, \u00fevo ullina og \u00fea\u00f0 hj\u00e1lpu\u00f0u allir til vi\u00f0 a\u00f0 smala, hugsa um lambf\u00e9, vitja um net, beita l\u00ednu, stokka upp l\u00ednu, sendast me\u00f0 mat og kaffi \u00ed lendinguna, \u00fear sem vinnan f\u00f3r fram. \u00deurrka fisk, hreinsa bl\u00f3\u00f0 \u00far fiski, vaska fisk, fara me\u00f0 mat og kaffi til \u00feeirra sem voru a\u00f0 taka upp m\u00f3 e\u00f0a voru \u00ed heyskap og svo \u00ed heyskapnum og a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 fara me\u00f0 rekstra \u00e1 milli b\u00e6ja \u00feegar smala\u00f0 var.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 fengum alltaf n\u00f3gan t\u00edma til a\u00f0 leika okkur, en vinnan h\u00fan var b\u00e6\u00f0i til \u00feess a\u00f0 hj\u00e1lpa til og a\u00f0 \u00e9g held a\u00f0allega til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um st\u00f6rfin, kynntumst l\u00edfinu og l\u00e6r\u00f0um a\u00f0 \u00feekkja n\u00e1tt\u00faruna. Vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um yfirleitt allt, \u00feekktum alla fugla og skepnur, \u00fev\u00ed vi\u00f0 fengum \u00fej\u00e1lfunina b\u00e6\u00f0i andlega og l\u00edkamlega. \u00c9g hef reki\u00f0 mig \u00e1 \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00e9g komst \u00e1 efri \u00e1r a\u00f0 unglingar \u00feekka varla skepnurnar og helst enga fugla. \u00deeir \u00feekkja ekki h\u00e1vellu fr\u00e1 \u00e6\u00f0arkollu, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0ra fugla.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g held a\u00f0 \u00f6ll b\u00f6rn \u00e1 b\u00e6junum hafi fari\u00f0 a\u00f0 gera eitthva\u00f0 innan vi\u00f0 t\u00edu \u00e1ra aldur. \u00c9g held a\u00f0 vinna barna innan vi\u00f0 t\u00edu \u00e1ra aldur hafi gildi, en h\u00fan ver\u00f0ur a\u00f0 vera takm\u00f6rku\u00f0. M\u00e9r \u00fe\u00f3tti erfi\u00f0ast a\u00f0 vita sldrei hven\u00e6r vinnan var b\u00fain hvern dag, \u00feetta var svo \u00f3takm\u00f6rku\u00f0 vinna. \u00c9g held a\u00f0 b\u00f6rnum hafi hvergi veri\u00f0 misbo\u00f0i\u00f0 me\u00f0 vinnu.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Heiman\u00e1m barna<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>B\u00f6rn voru l\u00e1tin stafa eins og \u00fea\u00f0 var kalla\u00f0 fimm til sex \u00e1ra g\u00f6mul og draga til stafs. M\u00e6\u00f0urnar ger\u00f0u \u00fea\u00f0 vanalega. B\u00f6rn voru or\u00f0in misjafnlega l\u00e6s \u00feegar \u00feau byrju\u00f0u \u00ed sk\u00f3la.<\/p>\n\n\n\n<p>Sk\u00f3linn var einn m\u00e1nu\u00f0 \u00e1 Su\u00f0urb\u00e6jum og hinn m\u00e1nu\u00f0inn \u00e1 Nor\u00f0fir\u00f0i til skiptis. Um sk\u00f3lat\u00edmann var ekki h\u00e6gt a\u00f0 sl\u00e1 sl\u00f6ku vi\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 vorum l\u00e1tin lesa \u00ferisvar yfir \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 \u00e1ttum a\u00f0 l\u00e6ra undir n\u00e6sta dag strax \u00feegar vi\u00f0 komum \u00far sk\u00f3lanum, svo m\u00e1ttum vi\u00f0 leika okkur. En svo vorum vi\u00f0 vakin klukkan sj\u00f6 a\u00f0 morgni og l\u00e1tin lesa einu sinni yfir.<\/p>\n\n\n\n<p>B\u00f6rnin l\u00e6r\u00f0u flj\u00f3tt \u00feulur og s\u00e1lma, \u00fej\u00f3\u00f0v\u00edsur og kv\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 var nokku\u00f0 algengt. \u00dea\u00f0 var n\u00fa l\u00edti\u00f0 um a\u00f0 \u00feessu v\u00e6ri haldi\u00f0 \u00e1 lofti. \u00dea\u00f0 var l\u00edti\u00f0 sungi\u00f0 helst \u00fej\u00f3\u00f0l\u00f6g og svo s\u00e1lmar vi\u00f0 h\u00faslestur. \u00c9g las d\u00e1l\u00edti\u00f0 af \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6gum og \u00e6vint\u00fdrum og alslags s\u00f6gur. \u00dea\u00f0 var miki\u00f0 tala\u00f0 um drauga og hulduf\u00f3lk, enda voru allir krakkar myrkf\u00e6lnir. Vi\u00f0 f\u00f3rum n\u00fa samt allra okkar fer\u00f0a, en helst ekki ein. \u00c9g held a\u00f0 eldra f\u00f3lki\u00f0 hafi ekki tr\u00faa\u00f0 \u00e1 \u00feetta, en \u00feessar s\u00f6gur gengu og vi\u00f0 heyr\u00f0um \u00fe\u00e6r. Kannski hefur \u00feetta \u00e1tt a\u00f0 hr\u00e6\u00f0a okkur.<\/p>\n\n\n\n<p>Kv\u00f6ldv\u00f6kur voru ekki \u00e1 heimilum h\u00e9r, \u00fe\u00e1 hv\u00edldust menn, l\u00e1su, l\u00e6r\u00f0u e\u00f0a ger\u00f0u s\u00e9r eitthva\u00f0 til dundurs, ekki lesi\u00f0 upph\u00e1tt.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um ekki undir fermingu fyrr en s\u00ed\u00f0asta vetur fyrir hana. Vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um ekki kveri\u00f0. Vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um miki\u00f0 af s\u00e1lmum \u00ed sk\u00f3lanum og l\u00edka fyrir ferminguna og svo tr\u00faarj\u00e1tninguna. \u00dea\u00f0 var aldrei h\u00fasvitja\u00f0 hj\u00e1 okkur.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Menntun og vinna t\u00edu til fj\u00f3rt\u00e1n \u00e1ra<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>Sk\u00f3li byrja\u00f0i um mi\u00f0jan september og honum lauk 15. mars. Sk\u00f3la var haga\u00f0 svolei\u00f0is a\u00f0 hann byrja\u00f0i \u00ed Nor\u00f0fjar\u00f0arsveit og var \u00fear \u00ed einn m\u00e1nu\u00f0, svo kom kennarinn til okkar \u00e1 su\u00f0urbygg\u00f0ina. \u00dea\u00f0 var handan vi\u00f0 fj\u00f6r\u00f0inn \u00ed einn m\u00e1nu\u00f0. Svona gekk \u00feetta yfir veturinn. Vi\u00f0 fengum semsagt \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i og \u00feeir \u00ed Nor\u00f0fjar\u00f0arsveit \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i, nema b\u00f6rn sem \u00e1ttu a\u00f0 fermast, \u00feau voru \u00e1 b\u00e1\u00f0um st\u00f6\u00f0um. \u00deeim var semsagt komi\u00f0 fyrir, fyrir nor\u00f0an. Sk\u00f3linn byrja\u00f0i klukkan n\u00edu og var til fj\u00f6gur e\u00f0a fimm. \u00c9g byrja\u00f0i \u00ed sk\u00f3la sj\u00f6 \u00e1ra. Fyrsta veturinn l\u00e6r\u00f0i \u00e9g lestur, skrift, reikning og teikningu. Svo b\u00e6ttist n\u00e1msefni\u00f0 vi\u00f0 eftir \u00fev\u00ed sem b\u00f6rnin eltust. \u00dea\u00f0 var landafr\u00e6\u00f0i, n\u00e1tt\u00farufr\u00e6\u00f0i (fugla, d\u00fdra, grasa), bibl\u00edus\u00f6gur, \u00cdslandssaga, \u00edslenska og fleira. B\u00f6rnin voru \u00f6ll \u00ed sk\u00f3lanum \u00ed einu, \u00feau voru ekki fleiri en \u00fea\u00f0. \u00deeim var bara skipt \u00ed t\u00edmana, eldri b\u00f6rnin s\u00e9r og yngri b\u00f6rnin s\u00e9r. \u00deau hafa kannski veri\u00f0 \u00e1tta til t\u00f3lf. B\u00f6rn voru n\u00fa \u00ed betri f\u00f6tum \u00e1 me\u00f0an \u00feau voru \u00ed sk\u00f3lanum. Agi var enginn, b\u00f6rn leyf\u00f0u s\u00e9r ekkert, \u00feau voru bara kurteis. Samskipti barna og kennara voru g\u00f3\u00f0 og milli \u00feeirra var gott samband og b\u00f6rnin \u00feekktust vel.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g hlakka\u00f0i til sk\u00f3lans, a\u00f0 minnsta kosti til a\u00f0 byrja me\u00f0, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri n\u00fa h\u00e1lf hr\u00e6ddur, en \u00fea\u00f0 gekk allt vel. Vi\u00f0 vorum s\u00e6milega undirb\u00fain, flest s\u00e6milega l\u00e6s og eitthva\u00f0 b\u00fain a\u00f0 draga til stafs og reikna, draga fr\u00e1 og leggja saman. Foreldrar h\u00f6f\u00f0u yfirleitt gott \u00e1lit \u00e1 sk\u00f3lan\u00e1mi og hv\u00f6ttu okkur og hj\u00e1lpu\u00f0u \u00fe\u00f3 \u00f6ll v\u00e6rum vi\u00f0 ekki \u00e1hugas\u00f6m. Vi\u00f0 vorum bara l\u00e1tin l\u00e6ra og gegndum \u00fev\u00ed. \u00c9g held a\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi allt f\u00f3lk h\u00e9r veri\u00f0 hrifi\u00f0 af sk\u00f3lan\u00e1mi. Fyrstu tvo vetrana ger\u00f0i \u00e9g ekkert yfir sk\u00f3lat\u00edmann og \u00e9g held a\u00f0 b\u00f6rnin hafi yfirleitt ekkert unni\u00f0 yfir sk\u00f3lat\u00edmann. \u00c1 milli sk\u00f3lam\u00e1na\u00f0anna var ma\u00f0ur l\u00e1tinn taka ni\u00f0ur hey handa k\u00fanum, moka fj\u00f3si\u00f0 og hlaupa fyrir f\u00e9\u00f0, en \u00fev\u00ed var alltaf beitt. \u00c1 sumrin rak \u00e9g og s\u00f3tti k\u00fdrnar, stokka\u00f0i upp l\u00ednu og beitti og f\u00f3r \u00e1 s\u00edldarnetin me\u00f0 pabba, f\u00f3r me\u00f0 a\u00f0 taka sv\u00f6r\u00f0 og hj\u00e1lpa\u00f0i yfirleitt vi\u00f0 allt sem \u00e9g gat gert. \u00c9g f\u00f3r me\u00f0 pabba \u00e1 f\u00e6ri \u00e1 t\u00edunda \u00e1rinu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00d3\u00fe\u00e6gir str\u00e1kar voru stundum h\u00fdddir \u00e1 \u00feessum \u00e1rum. Ef ma\u00f0ur gegndi ekki e\u00f0a ger\u00f0i eitthva\u00f0 alvarlegt f\u00f3r \u00f3g\u00e6tilega vi\u00f0 sj\u00f3inn e\u00f0a ger\u00f0i einhver sl\u00e6m skammarstrik til d\u00e6mis henti grj\u00f3ti \u00ed kr\u00edurnar. Ma\u00f0ur gat or\u00f0i\u00f0 \u00e6stur vi\u00f0 \u00fea\u00f0. L\u00edfi\u00f0 gekk n\u00fa allt \u00fat \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 \u00ed og framlei\u00f0a mat. \u00deetta var einn vei\u00f0iskapur. \u00dea\u00f0 var n\u00fa aldrei kalla\u00f0 ofbeldi \u00ed \u00fe\u00e1 daga \u00fe\u00f3 ma\u00f0ur fengi einn og einn rassskell.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Ferming og ungd\u00f3ms\u00e1r<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>Fermingarvori\u00f0 var gengi\u00f0 til prestsins. Hann l\u00e9t l\u00e6ra s\u00e1lma, tr\u00faarj\u00e1tninguna og spur\u00f0i \u00fat \u00far bibl\u00edus\u00f6gunum. \u00c9g gekk n\u00fa reyndar aldrei til prestsins vori\u00f0 sem \u00e9g fermdist. \u00dea\u00f0 var enginn starfandi prestur \u00e1 Nor\u00f0fir\u00f0i \u00feetta vor, en \u00fea\u00f0 kom prestur fr\u00e1 Eskifir\u00f0i til a\u00f0 spyrja b\u00f6rnin. \u00c9g \u00e1tti heima fyrir sunnan fj\u00f6r\u00f0 og \u00fea\u00f0 vi\u00f0ra\u00f0i svo illa a\u00f0 \u00e9g komst aldrei til spurninga, eins og \u00fea\u00f0 var kalla\u00f0, en presturinn f\u00e9kk Valdimar Sn\u00e6varr, sem \u00fe\u00e1 var sk\u00f3lastj\u00f3ri barnask\u00f3lans \u00ed Neskaupsta\u00f0 til \u00feess a\u00f0 spyrja mig og gekk \u00e9g til hans \u00ed eina viku fyrir ferminguna. \u00c9g haf\u00f0i n\u00fa ekki mikla hugsun \u00e1 tr\u00fam\u00e1lum \u00e1 \u00feessum aldri. Ma\u00f0ur hugsa\u00f0i meira um n\u00e1tt\u00faruna og l\u00edfi\u00f0 og st\u00f6rfin.<\/p>\n\n\n\n<p>Fermingardagurinn var m\u00e9r au\u00f0vita\u00f0 minnisst\u00e6\u00f0ur \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g muni n\u00fa l\u00edti\u00f0 fr\u00e1 honum a\u00f0 segja. Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00e1 trillub\u00e1t yfir fj\u00f6r\u00f0inn \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 var s\u00e6milegt ve\u00f0ur, \u00e9g man a\u00f0 \u00fea\u00f0 var fari\u00f0 beint \u00ed kirkjuna. Eftir ath\u00f6fnina var fari\u00f0 \u00ed h\u00fas kunningjaf\u00f3lks og \u00fear var drukki\u00f0 kaffi og s\u00fakkula\u00f0i og fari\u00f0 svo aftur heim a\u00f0 kv\u00f6ldi. \u00dea\u00f0 var fermt \u00e1 hv\u00edtasunnudag og teki\u00f0 til altaris \u00e1 uppstigningardag. \u00c9g man ekki hvort \u00e9g f\u00e9kk eitthva\u00f0 \u00ed fermingargj\u00f6f, en \u00e9g f\u00e9kk n\u00fd f\u00f6t. Fermingarb\u00f6rnin \u00feekkti \u00e9g f\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g \u00feekkti f\u00e1a \u00ed b\u00e6num, en \u00fea\u00f0 voru tv\u00f6 b\u00f6rn \u00far minni sveit Gu\u00f0r\u00fan Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir af n\u00e6sta b\u00e6 og Gunnar J\u00f3sepsson fr\u00e1 Sandv\u00edk. \u00c9g f\u00e9kk f\u00edn jakkaf\u00f6t fyrir ferminguna og st\u00edgv\u00e9lsk\u00f3. \u00deetta var n\u00fa venja og drengir fengu ekki jakkaf\u00f6t fyrr. Vi\u00f0 vorum venjulega kl\u00e6ddir stuttbuxum og ullarpeysum og svo einhverjum skj\u00f3lf\u00f6tum og k\u00faskinnssk\u00f3m. \u00dea\u00f0 var au\u00f0vita\u00f0 vo\u00f0a gaman a\u00f0 f\u00e1 svona f\u00edn f\u00f6t, \u00fe\u00e1 gat ma\u00f0ur kl\u00e6\u00f0st eins og fullor\u00f0na f\u00f3lki\u00f0 vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0leg t\u00e6kif\u00e6ri. \u00c9g fann enga breytingu l\u00edfi\u00f0 h\u00e9lt bara \u00e1fram. \u00c9g var \u00ed foreldrah\u00fasum framundir tv\u00edtugt og haf\u00f0i engin s\u00e9rst\u00f6k \u00e1form, \u00fea\u00f0 var bara vinna og aftur vinna en ma\u00f0ur kvei\u00f0 engu. L\u00edfi\u00f0 var fagurt og \u00fea\u00f0 var gaman a\u00f0 lifa.<\/p>\n\n\n\n<p>Um fermingu var ma\u00f0ur farinn a\u00f0 finna meira og kunni \u00f6ll verk. \u00de\u00f3 var \u00e9g farinn a\u00f0 r\u00f3a me\u00f0 pabba \u00e1 sumrin, byrja\u00f0i reyndar \u00e1 \u00fev\u00ed t\u00edu \u00e1ra. \u00de\u00e1 var \u00e9g farinn a\u00f0 sl\u00e1 me\u00f0 orfi eins og \u00fe\u00e1 var gert, taka sv\u00f6r\u00f0, gera a\u00f0 fiskinum, fletja hann og salta.<\/p>\n\n\n\n<p>Minn draumur \u00ed \u00fe\u00e1 daga var m\u00fasikn\u00e1m. Pabbi \u00e1tti gamla harmonikku. \u00c9g byrja\u00f0i strax a\u00f0 geta spila\u00f0 \u00e1 hana \u00feegar \u00e9g var \u00e1tta \u00e1ra. \u00c9g gat ekki sagt fr\u00e1 \u00feessum draumi, \u00fev\u00ed \u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi ekki veri\u00f0 \u00e1 d\u00f6finni eitt e\u00f0a neitt, en svo var \u00e9g l\u00e1tinn fara \u00ed gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3la \u00feegar \u00e9g var sautj\u00e1n \u00e1ra. \u00c9g f\u00f3r ekki \u00ed neitt n\u00e1m nema einn vetur \u00ed gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3lann. Foreldrar m\u00ednir hv\u00f6ttu mig til a\u00f0 fara \u00ed gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3lann, en \u00e9g h\u00e6tti \u00fear eftir einn vetur \u00fev\u00ed m\u00e9r fannst \u00e9g \u00feurfa a\u00f0 vinna. \u00c9g f\u00e9kk nefnilega aldrei kaup heima. Fj\u00f6lskyldan var st\u00f3r, vi\u00f0 vorum ellefu systkinin fj\u00f3rar stelpur og vi\u00f0 sj\u00f6 str\u00e1kar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00e1 t\u00f3k vi\u00f0 full vinna er \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 l\u00fdsa, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 var fari\u00f0 a\u00f0 vinna \u00e1 t\u00faninu. Mala sk\u00edt \u00e1 vorin, bera \u00e1 t\u00fani\u00f0, hugsa um lambf\u00e9. Svo var t\u00fani\u00f0 hreinsa\u00f0 og bori\u00f0 af eins og \u00fea\u00f0 var kalla\u00f0. Svo var fari\u00f0 a\u00f0 r\u00f3a. \u00dea\u00f0 gekk \u00feannig til a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f3rum og vitju\u00f0um um s\u00edldarnetin klukkan fj\u00f6gur \u00e1 n\u00f3ttunni. Svo var fari\u00f0 a\u00f0 beita l\u00ednuna sem var venjulega fj\u00f3rar til \u00e1tta l\u00ednur. Vi\u00f0 vorum venjulega m\u00f6rg, \u00fev\u00ed \u00e9g \u00e1tti fj\u00f3rar systur og einn br\u00f3\u00f0ur sem var eldri en \u00e9g. Svo f\u00f3rum vi\u00f0 a\u00f0 leggja l\u00ednuna. Daginn eftir f\u00f3rum vi\u00f0 \u00e1 netin um fj\u00f6gur e\u00f0a fimm \u00e1 n\u00f3ttu og f\u00f3rum me\u00f0 s\u00edldina \u00ed sk\u00farinn, f\u00f3rum svo a\u00f0 draga l\u00ednuna en systur m\u00ednar f\u00f3ru a\u00f0 beita \u00feegar \u00fe\u00e6r komu \u00e1 f\u00e6tur um \u00e1tta e\u00f0a n\u00eduleyti\u00f0. Vi\u00f0 komum svo fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 draga l\u00ednuna klukkan t\u00f3lf til eitt. \u00de\u00e1 f\u00f3ru allir a\u00f0 gera a\u00f0 fiskinum, sem var kannski fj\u00f6gur til sex e\u00f0a \u00e1tta til n\u00edu hundru\u00f0 k\u00edl\u00f3, hausa, taka innan \u00far, fletja og salta. \u00deegar \u00fea\u00f0 var b\u00fai\u00f0 \u00fe\u00e1 var klukkan kannski or\u00f0in milli fj\u00f6gur og fimm og \u00fe\u00e1 var kl\u00e1ra\u00f0 a\u00f0 beita. \u00dea\u00f0 var kannski um fimm til sexleyti\u00f0. \u00de\u00e1 f\u00f3rum vi\u00f0 karlmennirnir a\u00f0 leggja l\u00ednuna, en stelpurnar a\u00f0 stokka upp l\u00ednuna fr\u00e1 morgninum. \u00deegar vi\u00f0 komum fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja, \u00fe\u00e1 \u00feurfti a\u00f0 kl\u00e1ra a\u00f0 stokka upp l\u00ednuna og \u00fea\u00f0 var oft ekki komi\u00f0 heim fyrr en klukkan \u00e1tta til n\u00edu e\u00f0a kannski t\u00edu a\u00f0 kv\u00f6ldi, en \u00fe\u00e1 voru sumir or\u00f0nir \u00fereyttir, h\u00f6f\u00f0u kannski ekki lyst \u00e1 a\u00f0 bor\u00f0a. Ma\u00f0ur skola\u00f0i af s\u00e9r og henti s\u00e9r svo \u00ed r\u00fami\u00f0. En \u00feess ber a\u00f0 geta a\u00f0 okkur var alltaf f\u00e6r\u00f0ur matur og kaffi \u00ed lendinguna sem kalla\u00f0 var e\u00f0a sk\u00farinn.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 fengum alltaf n\u00f3g a\u00f0 bor\u00f0a. \u00dea\u00f0 var n\u00f3gur matur og svona gekk \u00feetta alltaf \u00feegar gaf \u00e1 sj\u00f3 fram a\u00f0 t\u00fanasl\u00e6tti. \u00de\u00e1 var fari\u00f0 a\u00f0 heyja og r\u00f3a \u00feegar sj\u00f3ve\u00f0ur var. \u00de\u00e1 hugsa\u00f0i kvenf\u00f3lki\u00f0 um heyi\u00f0. \u00c9g bj\u00f3 \u00e1fram heima \u00e1 Ger\u00f0isstekk me\u00f0 foreldrum m\u00ednum, en svo h\u00e9t b\u00e6rinn. Pabbi keypti annan trillub\u00e1t \u00feegar \u00e9g var sext\u00e1n \u00e1raog \u00e9g var forma\u00f0ur \u00e1 honum \u00e1 sumrin, en vann svo a\u00f0 b\u00faskapnum \u00feegar ekki var r\u00f3i\u00f0. \u00deegar \u00e9g var n\u00edtj\u00e1n \u00e1ra 1940 \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00e9g \u00e1 vetrarvert\u00ed\u00f0 til Hornafjar\u00f0ar, en var heima \u00e1 sumrin. &nbsp;\u00dea\u00f0 var aldrei nein spenna milli m\u00edn og foreldranna, \u00fea\u00f0 var ekki \u00e6tlast til a\u00f0 \u00e9g leg\u00f0i til heimilisins eftir a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 heiman. \u00dea\u00f0 voru yngri br\u00e6\u00f0ur m\u00ednir sem t\u00f3ku \u00fe\u00e1 vi\u00f0, en sambandi\u00f0 vi\u00f0 foreldrana og fj\u00f6lskylduna var alltaf jafn gott.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g flutti alfari\u00f0 a\u00f0 heiman 22ja \u00e1ra 1943, gifti mig og f\u00f3r a\u00f0 b\u00faa \u00e1 Nor\u00f0fir\u00f0i \u00ed kaupsta\u00f0num og hef b\u00fai\u00f0 \u00fear uppfr\u00e1 \u00fev\u00ed. \u00dear f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 r\u00f3a \u00e1 minum eigin b\u00e1ti sem var fj\u00f6gur tonn a\u00f0 st\u00e6r\u00f0. Vi\u00f0 hj\u00f3nin keyptum gamalt h\u00fas, \u00fear voru a\u00f0st\u00e6\u00f0ur s\u00e6milegar eftir \u00fev\u00ed sem t\u00ed\u00f0ka\u00f0ist. \u00dea\u00f0 var ekki mi\u00f0st\u00f6\u00f0 \u00ed h\u00fasinu, \u00fea\u00f0 var yfirleitt ekki komin mi\u00f0st\u00f6\u00f0 \u00ed h\u00fas \u00fe\u00e1, en \u00fea\u00f0 var kl\u00f3sett \u00fear en \u00fea\u00f0 var \u00f3v\u00ed\u00f0a \u00ed \u00fe\u00e1 daga.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dar sv\u00f6rum vi\u00f0 Spurningaskr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0minjasafns Bjarni var f\u00e6ddur \u00e1 Ger\u00f0isstekk \u00ed Nor\u00f0fjar\u00f0arhreppi 1.10. 1921, einn af ellefu b\u00f6rnum Bjarna Sigf\u00fassonar fr\u00e1 Bar\u00f0snesi og Halld\u00f3ru J\u00f3nsd\u00f3ttur fr\u00e1 Ger\u00f0isstekk. Minningarbrotin sem hann deilir me\u00f0 okkur eru fengin \u00far sv\u00f6rum hans vi\u00f0 spurningaskr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0minjasafns. A\u00f0 mestu er textinn fenginn beint fr\u00e1 honum. H\u00fasakynni \u00e1 Ger\u00f0isstekk me\u00f0 or\u00f0um Bjarna [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":731,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[97,98,103],"tags":[],"class_list":["post-1002","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frasagnir","category-sogur_af_sudurbaejum","category-sudurbaeir"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/www.kerling.is\/wp-content\/uploads\/2025\/11\/04-img629-Gerdisstekkur-i-Nordfirdi.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1002","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1002"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1002\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1003,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1002\/revisions\/1003"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media\/731"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1002"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1002"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1002"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}