{"id":1215,"date":"2026-02-14T14:32:15","date_gmt":"2026-02-14T14:32:15","guid":{"rendered":"https:\/\/seldalur.vefir.net\/kerling\/?p=1215"},"modified":"2026-02-22T13:00:41","modified_gmt":"2026-02-22T13:00:41","slug":"minningar-emils-sigdors-gudmundssonar-fra-bardsnesgerdi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/2026\/02\/14\/minningar-emils-sigdors-gudmundssonar-fra-bardsnesgerdi\/","title":{"rendered":"Minningar Emils Sigd\u00f3rs Gu\u00f0mundssonar fr\u00e1 Bar\u00f0snesger\u00f0i"},"content":{"rendered":"\n<p><em>Fyrst rifjar d\u00f3ttir hans Gu\u00f0bj\u00f6rg Emilsd\u00f3ttir upp minningabrot<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c1 eftir koma \u00ferj\u00e1r fr\u00e1sagnir Emils, skr\u00e1\u00f0ar \u00e1 Laugask\u00f3la 1940<\/em><\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Upprifjun \u00e1 minningabrotum<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>Fyrst segir Gu\u00f0bj\u00f6rg d\u00f3ttir Emils svo fr\u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum: Emil S. Gu\u00f0mundsson var tvo vetur \u00ed framhaldssk\u00f3lanum \u00e1 Laugum \u00ed Reykjadal, \u00e1rin 1939 og 1940. \u00c1ri\u00f0 1937 haf\u00f0i hann keypt trillub\u00e1tinn Au\u00f0berg fr\u00e1 Vestmannaeyjum. \u00c1ri\u00f0 1935 h\u00f6f\u00f0u Emil og \u00c1sgeir br\u00f3\u00f0ir hans keypt helminginn \u00ed j\u00f6r\u00f0inni Bar\u00f0snesger\u00f0i af Karli Halld\u00f3rssyni fr\u00e1 Sandv\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd lok seinna sk\u00f3la\u00e1rsins \u00e1 Laugum skrifa\u00f0i Emil ritger\u00f0 um sk\u00f3la\u00e1rin s\u00edn tv\u00f6 \u00e1 Laugum. \u00dear kemur fram a\u00f0 hann er \u00feakkl\u00e1tur fyrir \u00fe\u00e1 kennslu sem hann f\u00e9kk og d\u00e1ist a\u00f0 \u00feolinm\u00e6\u00f0i kennaranna, en finnst a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u m\u00e1tt vera strangari og a\u00f0 hann sj\u00e1lfur hef\u00f0i n\u00fa geta\u00f0 lagt sig betur fram vi\u00f0 b\u00f3klega n\u00e1mi\u00f0. Honum lei\u00f0 betur seinna \u00e1ri\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 f\u00e9kk hann meiri sm\u00ed\u00f0akennslu og segir: ,,Enda finnst m\u00e9r gaman a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 sm\u00ed\u00f0ar\u201d. \u00cd lok ritger\u00f0arinnar segir hann: ,,N\u00fa er mig fari\u00f0 a\u00f0 langa heim og er \u00fea\u00f0 af \u00feeirri \u00e1st\u00e6\u00f0u a\u00f0 \u00fea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 nokku\u00f0 \u00e1li\u00f0i\u00f0 og t\u00ed\u00f0in fremur g\u00f3\u00f0 og gott ver\u00f0 \u00e1 fiskinum. En heima geta \u00feeir l\u00edti\u00f0 stunda\u00f0 sj\u00f3r\u00f3\u00f0ra fyrr en \u00e9g kem heim, \u00fev\u00ed \u00feeir eru svo f\u00e1li\u00f0a\u00f0ir og \u00f3vanir a\u00f0 fara me\u00f0 v\u00e9lina \u00ed b\u00e1tnum (Au\u00f0bergi). M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 l\u00edka einna verst a\u00f0 \u00feegar \u00e9g kem heim skuli b\u00e1turinn ekki vera kominn \u00ed stand. \u00dea\u00f0 \u00fearf helst a\u00f0 taka \u00far b\u00e1tnum tv\u00f6 bor\u00f0. \u00dea\u00f0 er n\u00fa svo \u00e1statt me\u00f0 timbur verslananna heima \u00ed kaupsta\u00f0num a\u00f0 \u00fe\u00e6r hafa ekkert timbur n\u00fana. \u00dev\u00ed var pabbi a\u00f0 bi\u00f0ja mig a\u00f0 \u00fatvega s\u00e9r tv\u00f6 bor\u00f0 h\u00e9r fyrir nor\u00f0an ef \u00e9g g\u00e6ti\u201d.<\/p>\n\n\n\n<p>Emil sag\u00f0i s\u00f6gur af \u00fev\u00ed \u00feegar hann gekk \u00e1 sk\u00ed\u00f0um milli Lauga og Akureyrar og svo me\u00f0 skipi til Nor\u00f0fjar\u00f0ar, en hvort hann gat fari\u00f0 heim me\u00f0 tv\u00f6 bor\u00f0 \u00ed b\u00e1tinn sinn vitum vi\u00f0 ekki.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong><em>Farsk\u00f3li \u00e1 Bar\u00f0snesger\u00f0i og fyrsti sk\u00f3ladagurinn \u00fear:<\/em><\/strong> <\/h4>\n\n\n\n<p>Fa\u00f0ir minn \u00e1tti ekki g\u00f3\u00f0a minningu um fyrsta daginn sinn \u00ed barnask\u00f3la, en \u00fe\u00e1 var hann n\u00edu \u00e1ra. \u00dea\u00f0 var farsk\u00f3li \u00e1 Bar\u00f0snesger\u00f0i \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og haf\u00f0i hann hlakka\u00f0 miki\u00f0 til a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 byrja \u00ed sk\u00f3lanum. Hann sag\u00f0ist oft hafa legi\u00f0 \u00e1 hleri \u00feegar eldri nemendur voru \u00ed sk\u00f3lanum og reynt a\u00f0 hlusta. Morguninn sem sk\u00f3linn byrja\u00f0i \u00feurfti hann fyrst a\u00f0 hj\u00e1lpa til vi\u00f0 gegningar \u00e1\u00f0ur en hann \u00e1tti a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed sk\u00f3lann. Hann kemur \u00ed dyrnar \u00e1 stofunni gla\u00f0ur \u00ed brag\u00f0i, en nokkrum m\u00edn\u00fatum of seint og f\u00e9kk hann \u00fe\u00e1 ekki a\u00f0 fara inn. \u00deennan fyrsta sk\u00f3ladag \u00feurfti hann a\u00f0 sitja fyrir utan dyrnar. N\u00edu \u00e1ra drengnum var mj\u00f6g brug\u00f0i\u00f0 og held \u00e9g a\u00f0 hann hafi aldrei fyrirgefi\u00f0 kennaranum.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar \u00e9g sag\u00f0i f\u00f6\u00f0ur m\u00ednum a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i s\u00e9rstakan \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 vinna me\u00f0 b\u00f6rnum og f\u00f3lki sem v\u00e6ri lesblint sag\u00f0i hann m\u00e9r a\u00f0 hann h\u00e9ldi a\u00f0 hann v\u00e6ri lesblindur, s\u00e9r hafi s\u00f3st lestrarn\u00e1mi\u00f0 seint. Hann hvatti mig eindregi\u00f0 \u00e1fram til a\u00f0 vinna me\u00f0 b\u00f6rnum sem v\u00e6ru lesblind e\u00f0a \u00e6ttu erfitt me\u00f0 lestur. Hann var mj\u00f6g \u00e1hugasamur um a\u00f0 s\u00e6kja s\u00e9r menntun og vann s\u00e9r inn fyrir sk\u00f3lag\u00f6ngunni \u00ed Laugask\u00f3la \u00feegar hann var or\u00f0inn tv\u00edtugur. \u00cd framhaldi af \u00fev\u00ed l\u00e6r\u00f0i hann skipasm\u00ed\u00f0ar \u00ed Vestmannaeyjum. Hann var alla t\u00ed\u00f0 mj\u00f6g b\u00f3kelskur og fr\u00f3\u00f0leiksf\u00fas og las miki\u00f0 eftir a\u00f0 hann h\u00e6tti a\u00f0 vinna erfi\u00f0isvinnu vi\u00f0 skipasm\u00ed\u00f0ar og a\u00f0rar sm\u00ed\u00f0ar eftir sj\u00f6tugt. Skemmtilegast fannst honum svo \u00feegar einhver haf\u00f0i t\u00edma til \u00feess a\u00f0 hlusta \u00e1 hann segja fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem hann haf\u00f0i lesi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<h4 class=\"wp-block-heading\"><strong>Um heimahaga<\/strong><\/h4>\n\n\n\n<p>Fari \u00e9g til Nor\u00f0fjar\u00f0ar mun \u00e9g fara \u00feanga\u00f0 \u00e1 skipi e\u00f0a b\u00edl. En fari \u00e9g \u00e1 b\u00edl, k\u00e6mist \u00e9g ekki lengra \u00e1 honum en til Vi\u00f0fjar\u00f0ar sem er \u00ed sunnanver\u00f0um Nor\u00f0fir\u00f0i. \u00deegar \u00e9g er kominn til Vi\u00f0fjar\u00f0ar, er \u00e9g kominn \u00ed \u00fer\u00f6ngan dal me\u00f0 h\u00e1um og br\u00f6ttum hl\u00ed\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd Vi\u00f0fir\u00f0i er ekki nema einn b\u00e6r sem stendur undir hl\u00ed\u00f0inni a\u00f0 nor\u00f0anver\u00f0u. \u00dats\u00fdni er \u00fearna frekar takmarka\u00f0, \u00fea\u00f0 gera fjalla\u00ferengslin. Horfi ma\u00f0ur \u00fat eftir fir\u00f0inum a\u00f0 nor\u00f0anver\u00f0u s\u00e9r ma\u00f0ur str\u00f6ndina d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00fateftir og svo hafi\u00f0. En a\u00f0 sunnanver\u00f0u \u00fat me\u00f0 str\u00f6ndinni eru Bar\u00f0snesb\u00e6ir. F\u00e6ri \u00e9g fr\u00e1 Vi\u00f0fir\u00f0i \u00fat \u00e1 Bar\u00f0asnesb\u00e6i, yr\u00f0i \u00e9g fyrst a\u00f0 fara yfir \u00e1 sem heitir Vi\u00f0fjar\u00f0ar\u00e1. H\u00fan er a\u00f0 jafna\u00f0i frekar vatnsl\u00edtil. \u00dear tekur vi\u00f0 sandur sem er fyrir botni fjar\u00f0arins og er um einn k\u00edl\u00f3metri a\u00f0 lengd. N\u00e6st taka vi\u00f0 melar og moldarb\u00f6r\u00f0 og sm\u00e1 l\u00e6kir.<\/p>\n\n\n\n<p>Vegir eru \u00fearna engir nema g\u00f6tur sem eru ruddar \u00e1 hverju \u00e1ri. Gatan liggur \u00fearna mj\u00f6g n\u00e6rri sj\u00f3. Eftir \u00fev\u00ed sem ma\u00f0ur fer lengra \u00fat eftir og n\u00e1lgast Bar\u00f0snesb\u00e6i ver\u00f0ur sj\u00f3ndeildarhringurinn st\u00e6rri. B\u00e6rinn sem ma\u00f0ur kemur fyrst a\u00f0 heitir Stu\u00f0lar, st\u00f3r og b\u00fas\u00e6ldarleg j\u00f6r\u00f0. \u00dat \u00far henni skerst tangi \u00fat \u00ed sj\u00f3inn er heitir Bar\u00f0atangi. \u00c1 \u00feessum tanga er lei\u00f0i Bar\u00f0a gamla. S\u00e1 ma\u00f0ur nam fyrst Bar\u00f0snesb\u00e6i, Vi\u00f0fj\u00f6r\u00f0 og Hellisfj\u00f6r\u00f0. \u00dea\u00f0 er g\u00f6mul fr\u00e1s\u00f6gn a\u00f0 hann hafi l\u00e1ti\u00f0 jar\u00f0a sig \u00fearna til \u00feess a\u00f0 geta s\u00e9\u00f0 yfir landareign s\u00edna, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feessum sta\u00f0 sj\u00e1st allir \u00feessir sta\u00f0ir. Haldi ma\u00f0ur \u00e1fram \u00fat eftir um tvo k\u00edl\u00f3metra kemur ma\u00f0ur a\u00f0 b\u00e6 sem heitir Ger\u00f0isstekkur, heldur l\u00edti\u00f0 j\u00f6r\u00f0 en \u00ed \u00e1g\u00e6tis r\u00e6kt.<\/p>\n\n\n\n<p>&nbsp;Skammt \u00fear fyrir utan er Ger\u00f0i. \u00c1 \u00feeim b\u00e6 \u00e1 \u00e9g heima. T\u00fani\u00f0 er einnar dagsl\u00e1ttu og allt sl\u00e9tt og grasgefi\u00f0. J\u00f6r\u00f0in er allvel h\u00fasu\u00f0. A\u00f0algatan liggur r\u00e9tt ne\u00f0an vi\u00f0 \u00edveruh\u00fasi\u00f0. R\u00e9tt sunnan (framan) vi\u00f0 er fj\u00f3si\u00f0 me\u00f0 haugh\u00fasi undir og vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 \u00fev\u00ed er k\u00faahla\u00f0an og bl\u00f3magar\u00f0ur framan vi\u00f0 \u00ed brekkunni. Fyrir ofan b\u00e6inn er \u00feurrkhjallur (\u00fevotta) og hesth\u00fas skammt fr\u00e1. Ne\u00f0st \u00ed t\u00faninu r\u00e9tt ofan vi\u00f0 fj\u00f6runa er fj\u00e1rh\u00fas og hla\u00f0a og \u00fear r\u00e9tt utan vi\u00f0 eru tv\u00f6 sj\u00f3h\u00fas og \u00fear ne\u00f0an vi\u00f0 er lendingin sem \u00feykir frekar sl\u00e6m nema yfir h\u00e1sumari\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00datr\u00e6\u00f0i \u00feykir gott a\u00f0 heiman, heldur stutt a\u00f0 s\u00e6kja og \u00fats\u00fdni gott. Ma\u00f0ur s\u00e9r vel til ve\u00f0urs \u00fev\u00ed ma\u00f0ur s\u00e9r alltaf hvort vindur er utan e\u00f0a ekki, Svo getur ma\u00f0ur fylgst me\u00f0 allri umfer\u00f0 \u00fev\u00ed ekkert skip e\u00f0a b\u00e1tur fer svo \u00fat og inn fj\u00f6r\u00f0inn a\u00f0 ma\u00f0ur ver\u00f0i ekki var vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>V\u00ed\u00f0ast hvar \u00e1 t\u00faninu er grunnt \u00e1 grj\u00f3tinu, enda er l\u00edka mest r\u00e6kta\u00f0 upp \u00far gr\u00f3\u00f0urlitlum og gr\u00fdttum jar\u00f0vegi. Allt \u00ed kringum t\u00fani\u00f0 er gr\u00fdttur jar\u00f0vegur og m\u00fdrar og m\u00f3ar og fyrst ofan tekur vi\u00f0 hver hjallinn af \u00f6\u00f0rum og \u00e1 milli \u00feeirra eru m\u00fdrafl\u00e1ar. Sumarbeit \u00feykir \u00fearna heldur sl\u00e6m fyrir sau\u00f0f\u00e9 en vetrarbeit s\u00e6mileg.<\/p>\n\n\n\n<p>H\u00fasi\u00f0 stendur frekar h\u00e1tt, enda \u00fats\u00fdni \u00fea\u00f0an gott, \u00fear s\u00e9r ma\u00f0ur inn um alla fir\u00f0i, Vi\u00f0fj\u00f6r\u00f0, Hellisfj\u00f6r\u00f0 og Nor\u00f0fj\u00f6r\u00f0 og kaupsta\u00f0inn s\u00e9r ma\u00f0ur vel, hann er beint \u00e1 m\u00f3ti b\u00e6num heima a\u00f0 nor\u00f0anver\u00f0u vi\u00f0 fj\u00f6r\u00f0inn. \u00dea\u00f0 er oft fallegt og gaman a\u00f0 horfa nor\u00f0ur \u00ed b\u00e6inn \u00e1 kv\u00f6ldin \u00feegar hann er allur upplj\u00f3ma\u00f0ur af lj\u00f3sum. Kaupsta\u00f0urinn er \u00ed v\u00edk einni vi\u00f0 fj\u00f6r\u00f0inn. B\u00e6rinn er mj\u00f3r og langur, enda er undirlendi \u00fearna l\u00edti\u00f0 og mj\u00f3tt. R\u00e9tt sunnan vi\u00f0 kaupsta\u00f0inn stendur S\u00edldarverksmi\u00f0jan og Lifrarbr\u00e6\u00f0slan. B\u00e6jarb\u00faar eiga g\u00f3\u00f0a skipabryggju og h\u00f6fnin er \u00e1g\u00e6t.<\/p>\n\n\n\n<p>Er ma\u00f0ur l\u00edtur \u00ed nor\u00f0austur a\u00f0 heiman s\u00e9r ma\u00f0ur Dalatanga og N\u00edpuna sem greinir \u00ed sundur Nor\u00f0fj\u00f6r\u00f0 og Mj\u00f3afj\u00f6r\u00f0. N\u00edpan er h\u00e1r og \u00feverhn\u00edptur fjallgar\u00f0ur. Inn \u00far Nor\u00f0fir\u00f0i skerst dalur sem heitir Fannardalur og inn \u00far honum er h\u00e1tt fjall er nefnist Fannardalsj\u00f6kull. \u00c1 \u00fev\u00ed fjalli er alltaf f\u00f6nn og h\u00fan er a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 heiman \u00e1 sumrin leirlitu\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Kaffon<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p>\u00c9g man eftir hundi sem pabbi \u00e1tti og h\u00e9t Kaffon. \u00dea\u00f0 var mj\u00f6g st\u00f3r hundur og man \u00e9g ekki til \u00feess a\u00f0 \u00e9g hafi s\u00e9\u00f0 st\u00e6rri hund. Hann var svartur a\u00f0 lit me\u00f0 hv\u00edta bringu og hring um h\u00e1lsinn, \u00f6rmj\u00f3an, og me\u00f0 lafandi eyru og skott. Hann var af fr\u00f6nsku kyni. \u00deetta var fram\u00farskarandi sj\u00f3hundur og \u00feolanlegur smalahundur \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum. En latur og stir\u00f0ur \u00feegar hann f\u00f3r a\u00f0 eldast eins og allir sj\u00f3hundar ver\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p>Einu sinni um haustt\u00edma var pabbi a\u00f0 ganga me\u00f0fram sj\u00f3 til a\u00f0 g\u00e1 a\u00f0 kindum. \u00de\u00e1 rakst hann \u00e1 tv\u00f6 l\u00f6mb \u00ed b\u00e1s einum sem ekki var h\u00e6gt a\u00f0 komast \u00ed nema \u00e1 lagi, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var fyrir forva\u00f0 a\u00f0 fara og brim miki\u00f0. Hann f\u00f3r \u00ed b\u00e1tinn til lambanna og Kaffon me\u00f0, sem var me\u00f0 honum a\u00f0 vana. Svo \u00e6tla\u00f0i pabbi a\u00f0 reka \u00feau yfir forva\u00f0ann \u00e1 lagi, en \u00fea\u00f0 t\u00f3kst ekki \u00fev\u00ed l\u00f6gin voru svo stutt. \u00deegar \u00feau f\u00f3ru fyrir forva\u00f0ann kom \u00f3lag og t\u00f3k \u00fat \u00fea\u00f0 lambi\u00f0 sem var \u00e1 eftir og \u00fea\u00f0 f\u00f3r langt \u00fat \u00e1 l\u00f6g, \u00e1 a\u00f0 giska 30 til 40 fa\u00f0ma fr\u00e1 landi. Pabbi taldi a\u00f0 v\u00edst a\u00f0 lambi\u00f0 v\u00e6ri s\u00e9r tapa\u00f0, en \u00fe\u00e1 datt honum \u00ed hug a\u00f0 reyna a\u00f0 senda Kaffon eftir \u00fev\u00ed. Hann lag\u00f0i strax af sta\u00f0 \u00feegar hann sag\u00f0i honum a\u00f0 fara. \u00deegar hann var kominn nokkra fa\u00f0ma fr\u00e1 landi kom hvert \u00f3lagi\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru. En hann h\u00e9lt \u00e1fram \u00f3hr\u00e6ddur og stakk s\u00e9r \u00ed \u00f6ldurnar e\u00f0a l\u00e9t \u00fe\u00e6r brj\u00f3ta yfir sig. En \u00feegar kom a\u00f0 lambinu beit hann framan \u00ed h\u00f3sti\u00f0 og synti me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed land. Lambi\u00f0 var vel lifandi og jafna\u00f0i sig flj\u00f3tt. \u00deetta \u00fe\u00f3tti a\u00f0d\u00e1unarvert a\u00f0 hundur skyldi geta bjarga\u00f0 lambinu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var frekar brimasamt heima. Kemur e\u00f0a kom \u00feess vegna oft fyrir a\u00f0 kindur hr\u00f6kkva \u00ed sj\u00f3inn yst \u00ed bug\u00f0unni og \u00feegar \u00fe\u00e6r rak inn me\u00f0 landinu var Kaffon oft l\u00e1tinn s\u00e6kja \u00fe\u00e6r ef \u00feess var kostur.<\/p>\n\n\n\n<p>Margan sj\u00f3fuglinn s\u00f3tti hann \u00fe\u00f3 a\u00f0 ekki v\u00e6ri oft \u00e1rennilegt fyrir hann a\u00f0 fara \u00fat. Einu sinni man \u00e9g a\u00f0 honum var p\u00fassa\u00f0 \u00fat \u00e1 planka sem var \u00e1 floti skammt undan landi. Hann f\u00f3r \u00fat, en \u00feegar hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 b\u00edta utan um plankann, var hann svo \u00feykkur a\u00f0 hann n\u00e1\u00f0i ekki utan um hann. Hann t\u00f3k \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0, sem hundar eru ekki vanir a\u00f0 gera, a\u00f0 hann l\u00e9t plankann liggja framan \u00e1 bringunni og \u00fdtti honum \u00feannig \u00e1 undan s\u00e9r \u00ed land.<\/p>\n\n\n\n<p>Einu sinni var pabbi a\u00f0 fara \u00ed kaupsta\u00f0 og f\u00f3r gangandi \u00fev\u00ed fj\u00f6r\u00f0urinn var fullur af haf\u00eds. \u00dea\u00f0 mun hafa veri\u00f0 1917 til 1918. \u00de\u00e1 t\u00f3k pabbi eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Kaffon var horfinn fr\u00e1 honum en r\u00e9tt \u00e1 eftir hann kom labbandi me\u00f0 \u00e1lft \u00ed kjaftinum sem hann haf\u00f0i n\u00e1\u00f0 og drepi\u00f0. H\u00fan haf\u00f0i v\u00edst ekki geta\u00f0 flogi\u00f0 \u00fev\u00ed h\u00fan var svo s\u00e1r \u00e1 v\u00e6ngjunum eftir \u00edsinn.<\/p>\n\n\n\n<p>Kaffon haf\u00f0i \u00fea\u00f0 fyrir vana a\u00f0 vera vinalegur vi\u00f0 gesti. Ef \u00feeir voru \u00e1 gangi \u00fati kom hann oft me\u00f0 hnullungsstein \u00ed kjaftinum og lag\u00f0i \u00e1 hn\u00e9 a\u00f0komumannsins og dingla\u00f0i skottinu. \u00de\u00e1 var hann a\u00f0 bi\u00f0ja \u00fe\u00e1 a\u00f0 kasta steininum. \u00dea\u00f0 var sama hvert honum var kasta\u00f0, alltaf fann hann steininn aftur og kom me\u00f0 hann.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar Kaffoni var farga\u00f0 var hann or\u00f0inn gamall, enda or\u00f0inn h\u00e1lf tannlaus og n\u00e6stum \u00fev\u00ed blindur.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong><strong>Fyrsta vert\u00ed\u00f0in m\u00edn<\/strong><\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><em>\u00deegar \u00e9g var \u00e1tta \u00e1ra 1926<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 segja fr\u00e1 nokkrum sj\u00f3fer\u00f0um \u00e1 fyrstu vert\u00ed\u00f0inni sem \u00e9g f\u00f3r \u00e1. \u00dea\u00f0 var \u00e1ri\u00f0 1926 a\u00f0 pabbi f\u00f3r til sj\u00f3r\u00f3\u00f0ra su\u00f0ur til Sandv\u00edkur. \u00dea\u00f0 er sm\u00e1v\u00edk sunnan vi\u00f0 Nor\u00f0fj\u00f6r\u00f0. \u00deanga\u00f0 er r\u00famlega klukkustundar gangur a\u00f0 heiman (Bar\u00f0snesger\u00f0i\/Ger\u00f0i) en yfir brattan fjallveg a\u00f0 fara.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00ed endu\u00f0um mars sem pabbi f\u00f3r \u00e1 r\u00f3\u00f0rab\u00e1t \u00fat fyrir til Sandv\u00edkur. Vi\u00f0 vorum fj\u00f3rir \u00e1 b\u00e1tnum. B\u00e1turinn er heldur l\u00edtill, \u00feriggja til fj\u00f6gra manna far. Hann var fullfermdur \u00fev\u00ed vi\u00f0 vorum me\u00f0 \u00fdmislegt drasl, sem tilheyr\u00f0i \u00fatger\u00f0inni og svo me\u00f0 salt a\u00f0 hafa \u00ed fiskinn.<\/p>\n\n\n\n<p>Til Sandv\u00edkur er um \u00feriggja klukkustunda r\u00f3\u00f0ur, en \u00ed \u00feetta skipti, \u00feegar vi\u00f0 vorum um \u00fea\u00f0 bil h\u00e1lfna\u00f0ir og vorum komnir su\u00f0ur fyrir Horn, kom m\u00f3torb\u00e1tur \u00e1 eftir okkur. \u00deegar hann var kominn \u00e1 m\u00f3ts vi\u00f0 okkur veifu\u00f0um vi\u00f0 b\u00e1tnum og beyg\u00f0i hann strax til okkar og t\u00f3k okkur \u00ed slef. M\u00f3torb\u00e1turinn var Vonin fr\u00e1 Akureyri. H\u00fan slefa\u00f0i okkur su\u00f0ur \u00e1 V\u00edk en var\u00f0 a\u00f0 fara h\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e1turinn okkar sem var aftan \u00ed \u00feoldi ekki mikinn hra\u00f0a, \u00fev\u00ed hann var hla\u00f0inn og haf\u00f0i \u00feess vegna l\u00edti\u00f0 bor\u00f0 fyrir b\u00e1ru.<\/p>\n\n\n\n<p>Okkur gekk s\u00e6milega a\u00f0 lenda og afferma b\u00e1tinn \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var fremur l\u00e1dautt. Annars er heldur vond h\u00f6fn \u00fearna, eins og geta m\u00e1 n\u00e6rri, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 m\u00e1 heita a\u00f0 h\u00f6fnin liggi fyrir opnu hafi. \u00deegar vi\u00f0 vorum b\u00fanir a\u00f0 setja og ganga fr\u00e1 \u00f6llu, var komi\u00f0 myrkur. F\u00f3rum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 heim \u00e1 b\u00e6i, en \u00feanga\u00f0 er h\u00e1lft\u00edma gangur. Einn f\u00f3r heim a\u00f0 Hundru\u00f0um, \u00fev\u00ed hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 vera \u00fear til heimilis. En vi\u00f0 hinir f\u00f3rum heim a\u00f0 Seli, \u00fev\u00ed \u00fear \u00e6tlu\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 vera til heimilis og var okkur vel teki\u00f0. Enda bjuggu l\u00edka \u00fearna afi og amma.<\/p>\n\n\n\n<p>Daginn eftir var \u00e9g vakinn snemma, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var bl\u00e6gjalogn og sl\u00e9ttur sj\u00f3r. \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri seint a\u00f0 sofa um kv\u00f6ldi\u00f0 og v\u00e6ri vakinn snemma, \u00fe\u00e1 fann \u00e9g ekkert til \u00feess, a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri syfja\u00f0ur, \u00fev\u00ed a\u00f0 hugann haf\u00f0i \u00e9g allan vi\u00f0 a\u00f0 komast \u00e1 sj\u00f3inn. Vi\u00f0 fengum gott sj\u00f3ve\u00f0ur \u00feennan dag og fisku\u00f0um s\u00e6milega. \u00c9g var ekkert sj\u00f3veikur og \u00feess vegna hraustur. \u00c9g dr\u00f3 um hundra\u00f0 fiska og \u00fe\u00f3tti miki\u00f0, \u00fev\u00ed \u00e9g dr\u00f3 vel \u00e1 vi\u00f0 hina, enda t\u00f3k pabbi h\u00e1lfan hlut fyrir mig.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 var einn laugardaginn fyrir p\u00e1ska a\u00f0 pabbi vakti mig milli klukkan fimm um morguninn og sag\u00f0i a\u00f0 \u00e9g yr\u00f0i a\u00f0 vera flj\u00f3tur a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a mig, \u00fev\u00ed \u00feeir v\u00e6ru a\u00f0 fara \u00fateftir. \u00dear me\u00f0 sag\u00f0i hann a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri gott ve\u00f0ur. \u00c9g var flj\u00f3tur a\u00f0 snarast fram \u00far og \u00ed f\u00f6tin, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i hlakka\u00f0 til \u00feessa dags, \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um heim \u00feennan dag til \u00feess a\u00f0 geta veri\u00f0 heima um p\u00e1skana.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar vi\u00f0 vorum komnir \u00fat \u00e1 Sk\u00e1la, \u00fea\u00f0 var nafni\u00f0 \u00e1 lendingunni, m\u00e1tti heita or\u00f0i\u00f0 bjart a\u00f0 degi. \u00dea\u00f0 fyrsta sem vi\u00f0 ger\u00f0um \u00feegar vi\u00f0 komum a\u00f0 b\u00e1tnum, var a\u00f0 setja \u00e1 negluna og leggja fyrir hann og setja ofan. \u00deegar vi\u00f0 vorum komnir \u00e1 flot f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 k\u00edkja eftir vettlingunum m\u00ednum, \u00fev\u00ed \u00e9g gleymdi \u00feeim \u00ed b\u00e1tnum um kveldi\u00f0. Vettlingarnir l\u00e1gu \u00e1 einni \u00fe\u00f3ttunni, beingadda\u00f0ir enda var b\u00e1turinn allur hv\u00edtur af h\u00e9lu. \u00c9g gat ekki komi\u00f0 vettlingunum upp \u00e1 hendurnar \u00fev\u00ed \u00feeir voru svo har\u00f0ir. \u00c9g var\u00f0 a\u00f0 leggja \u00fe\u00e1 \u00ed bleyti \u00ed sj\u00f3 til a\u00f0 \u00fe\u00ed\u00f0a \u00fe\u00e1 og vinda \u00fe\u00e1 svo. En heldur \u00fe\u00f3tti m\u00e9r \u00feeir kaldir a\u00f0 setja \u00fe\u00e1 upp.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar a\u00f0 vi\u00f0 vorum b\u00fanir a\u00f0 r\u00f3a \u00f6rskammt fr\u00e1 lendingunni, rerum vi\u00f0 \u00ed gegnum s\u00edlistorfu. Vi\u00f0 l\u00f6g\u00f0um upp \u00fear skammt fyrir utan og byrju\u00f0um a\u00f0 renna f\u00e6rum. Var\u00f0 okkur \u00fe\u00e1 liti\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed sj\u00f3inn fyrir utan bor\u00f0stokkinn og s\u00e1um vi\u00f0 \u00fe\u00e1 til mikillar undrunar a\u00f0 vi\u00f0 vorum uppi yfir st\u00f3rri fiskitorfu, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fearna var svo grunnt a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e1um fiskinn vel vi\u00f0 botninn. Fiskurinn l\u00e1 \u00fearna a\u00f0 heita m\u00e1tti hreyfingarlaus, \u00fev\u00ed hann l\u00e1 \u00fearna sj\u00fakur. \u00deegar vi\u00f0 renndum ofan \u00ed torfuna \u00fe\u00e1 v\u00e9k hann s\u00e9r a\u00f0eins \u00ed burtu fr\u00e1 \u00f6nglunum og sinnti \u00feeim ekki neitt a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti. En samt g\u00e1tum vi\u00f0 sliti\u00f0 upp einn og einn. En svo k\u00e9ppum vi\u00f0 \u00fear r\u00e9tt \u00fat fyrir, \u00fear og fengum vi\u00f0 grj\u00f3tn\u00f3gan fisk \u00e1 fimmt\u00e1n fa\u00f0ma d\u00fdpi. \u00dea\u00f0 var reglulega gaman \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed aldrei er meira gaman a\u00f0 draga fisk en \u00e1 grunnu vatni, \u00fe\u00e1 \u00f3lmast hann svo miki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 vorum b\u00fanir a\u00f0 f\u00e1 n\u00f3g \u00ed b\u00e1tinn eftir skamman t\u00edma og f\u00f3rum \u00fe\u00e1 \u00ed land sem var stutt, um tuttugu m\u00edn\u00fatna r\u00f3\u00f0ur. Vi\u00f0 losu\u00f0um b\u00e1tinn og f\u00f3rum strax \u00fat aftur nema einn sem var\u00f0 eftir \u00ed landi til a\u00f0 gera a\u00f0 fiskinum. Heldur var hann tregari vi\u00f0 okkur \u00ed seinna skipti\u00f0 en \u00ed \u00fea\u00f0 fyrra. En undir kv\u00f6ldi\u00f0 vorum vi\u00f0 b\u00fanir a\u00f0 f\u00e1 \u00ed b\u00e1tinn. \u00de\u00e1 var fari\u00f0 \u00ed land, settur upp b\u00e1turinn og gert a\u00f0 fiskinum. Vi\u00f0 vorum ekki b\u00fanir a\u00f0 \u00fev\u00ed fyrr en klukkan t\u00f3lf um kveldi\u00f0. \u00de\u00e1 var \u00e9g or\u00f0inn \u00fereyttur og hinir l\u00edka en m\u00e9r var n\u00fa heldur hl\u00edft \u00ed a\u00f0ger\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00f3 a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum or\u00f0nir \u00fereyttir vorum vi\u00f0 \u00e1s\u00e1ttir me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara gangandi heim. Fer\u00f0in heim tekur \u00e1 annan klukkut\u00edma og er yfir brattan fjallveg. Var\u00f0 a\u00f0 ganga sumt af lei\u00f0inni \u00e1 broddum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var yfir fannir a\u00f0 fara og \u00e1 \u00feeim var glerungur. En \u00fea\u00f0 var vel gangbjart \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var glatt tunglskin. Feginn var \u00e9g og \u00e1n\u00e6g\u00f0ur \u00feegar heim var komi\u00f0 og var flj\u00f3tur \u00ed h\u00e1ttinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrst rifjar d\u00f3ttir hans Gu\u00f0bj\u00f6rg Emilsd\u00f3ttir upp minningabrot \u00c1 eftir koma \u00ferj\u00e1r fr\u00e1sagnir Emils, skr\u00e1\u00f0ar \u00e1 Laugask\u00f3la 1940 Upprifjun \u00e1 minningabrotum Fyrst segir Gu\u00f0bj\u00f6rg d\u00f3ttir Emils svo fr\u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum: Emil S. Gu\u00f0mundsson var tvo vetur \u00ed framhaldssk\u00f3lanum \u00e1 Laugum \u00ed Reykjadal, \u00e1rin 1939 og 1940. \u00c1ri\u00f0 1937 haf\u00f0i hann keypt trillub\u00e1tinn Au\u00f0berg fr\u00e1 Vestmannaeyjum. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":884,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[97,98,103],"tags":[],"class_list":["post-1215","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frasagnir","category-sogur_af_sudurbaejum","category-sudurbaeir"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/www.kerling.is\/wp-content\/uploads\/2025\/11\/Lendingarhusid-a-Gerdisstekk.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1215","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1215"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1215\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1216,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1215\/revisions\/1216"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media\/884"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1215"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1215"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.kerling.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1215"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}