Í þjóðsögum Þorsteins Erlingssonar segir að flugamaður sem komst á Kerlingarflöt í Norðfjarðarnípu, þar sem Nípukerlingin 18 álna há stóð, hafi sofnað hjá henni og dreymt að hún segði honum svo frá, “ áður en land þetta sem þér kallið Ísland byggðist mennskum mönnum, fluttust hingað allskonar landvættir, huldufólk, dvergar og tröll og lifðu hér langan aldur í friði og ró. Ég er ein þessara trölla og lifðum við á hvölum, rostungum, fugla og fiskaföngum. ”
Lesa meira