Götur, slóðar og fjallaskörð

Aðal ferðaleiðir milli svæða í eyðibyggðum Norðfjarðarhrepp

Frá suðri til norðurs voru aðal gönguleiðir þessar og nr 2, 4 og 5 einnig hestfærar.

  • 1. Inn á svæðið frá Vöðlum í Vöðlavík um Tregaskarð eða Gerpisskarð til Sandvíkur
  • 2. Frá Sandvík yfir á Barðsnes um Sandvíkurskarð
  • 3. Frá Sandvík í Viðfjörð um Kerlingarskarð og Nónskarð
  • 4. Frá Barðsnesi í Viðfjörð með ströndinni. Þaðan var gengið áfram norður fyrir Viðfjarðarnes meðfram sjó til Hellisfjarðar
  • 5. Frá Hellisfirði til Norðfjarðar. Hellisfjarðarskriður um Götuhjalla á Hellisfjarðarnesi til Grænaness í Norðfirði
  • 6. Frá Hellisfjarðarseli um Hnúka yfir á Oddsdal í Norðfirði úr Hellisfirði

Ruddar götur

Árið 1951 var ruddur jeppavegur frá Viðfirði út á Barðsnes með jarðýtu. Ekki verður séð að borið hafi verið ofaní hann og er hann ófær með öllu frá Stuðlum.

Viðfjarðarvegur um Dys (áður Almannaskarð) var lagður af Víkurheiði milli Reyðarfjarðar og Vöðlavíkur að mestu leyti með handverkfærum og að hluta til með hestum á árunum 1934 til 1942. Sjá nánar umfjöllun um Viðfjarðarveg.

Fáfarnar leiðir en færar

  • 1. Sandvík – Barðsnes um Afréttarskarð utan við Sandfell/Heppu
  • 2. Sandvík – Barðsnes um Síðuskarð innan við Sandfell/Heppu
  • 3. Hellisfjörður – Reyðarfjörður um Hrafnaskörð
  • 4. Hellisfjörður – Reyðarfjörður um Helgustaðaskarð
  • 5. Hellisfjörður – Norðfjörður um Hellisfjarðarskarð og Lollaskarð
error: Content is protected !!