Kort frá Ferðafélagi Fjarðamanna, Gönguleiðir á Fjarðaslóðum, útgefið árið 2011. Hluti þess sem nær yfir eyðibyggðirnar. Kortagerðarmaður Hafþór Snjólfur Helgason. Texti og merkingar frá Ínu Dagbjörtu Gísladóttur.
Kortið er birt á þessari síðu með góðfúslegu leyfi þessara aðila.
Á sínum tima voru allar grænmerktu leiðirnar stikaðar. Ferðafélag Fjarðamanna tekur ekki ábyrgð á villum eða slysum eða öðru bótaskyldu, sem fyrir ferðamenn kann að koma. Eyðilegging stika af völdum dýra og snjóflóða og ný tækni til rötunar hefur tekið við hlutverki þeirra. Aðrar merkingar eru í fullu gildi á kortinu.


