Búseta í viðfirði

Bjarni Sveinsson og Guðrún Jónsdóttir bjuggu í Viðfirði frá því um miðja 19. öld og áttu 16 börn. Afkomendur þeirra teljast til hinnar fjölmennu Viðfjarðarættar, þeir bjuggu þar til loka búsetu. Guðrún þótti röggsöm svo af bar og óvílin. Bjarni var lista skrifari og skrifaði upp bækur fágæts efnis.

Sveinn Þórarinsson ásamt Sigríði föðursystur sinni. Í baksýn fjárhús, en gripahús í Viðfirði voru einungis hlaðin úr torfi og grjóti, þakið klætt bárujárni.

Nokkrir afkomendur þeirra sem urðu þekktir ýmist fyrir hagleik eða fræði.

Doktor Björn Bjarnason kennari, orðabókarmaður og orðasmiður varði ritgerð sína um íþróttir fornmanna. Hann skráði einnig merkar þjóðsögur tengdar svæðinu og gaf út.

Sveinn Bjarnason hlaut alhliða menntun til smíða á tré og járn í Danmörku. Hann tók við búi í Viðfirði þegar heim kom, vann meðfram búskapnum að smíðum og kenndi sonum sínum smíðar. Í Viðfirði var eldsmiðja ofan gamla bæjarins og sneri stafni að sjó. Ofan við bryggjuna var smíðaverkstæði. Þar smíðaði Sveinn marga árabáta. Einnig smíðaði hann vélbáta þegar þeir komu til sögunnar, bæði einn og í félagi við aðra. Hann dvaldi oft um tíma á Norðfirði við bátasmíðar.

Auk þess smíðuðu Sveinn og synir hans alls konar búshluti; borð, rokka og annað það, sem fólk vantaði.

Sófus Sveinsson skar út taflmenn úr birki frá Hallormsstað, sem voru sendir á Heimssýninguna í New York 1939. Mikil hagleikssmíð. Þeir eru nú í Safnahúsinu í Neskaupstað.

Karl Hjelm sonur Sigríðar Sveinsdóttur og Karl Henning Hjelm, ólst upp í Viðfirði. Hann vann mikið að æskulýðsmálum á Norðfirði á yngri árum. Kenndi börnum og unglingum að tefla, taka og vinna ljósmyndir og að safna steinum. Hann var áhugaljósmyndari og hélt sýningar á verkum sínum.

Árið 1932 var byggt stórhýsi í Viðfirði teiknað af Guðjóni Samúelssyni, sem nú hefur verið gert upp af myndarskap.

Ný mynd af hinu glæsilega húsi í Viðfirði frá 1932. Utan við húsið eru rústir gamla bæjarins vel sýnilegar. Þar stóð timburhús með risi 24 fermetrar að grunnfleti. Ofan við rústirnar var eldsmiðja Sveins Bjarnasonar og sona hans

Öflug útgerð var frá Viðfirði til 1936. Það ár, fyrsta október, fórust þrír bræður, þeir Þórarinn, Frímann og Sófus Sveinssynir í sjóróðri ásamt ábúandanum á Borg Halldóri Eiríkssyni. Báturinn sem þeir fórust á hét Sigþór.

Minnismerki frá 2012 um fjóra Viðfirðinga sem létust í sjóslysi á vélbátnum Sigþóri 1. október 1936. Bræðurna Þórarinn, Frímann og Sófus Sveinssyni í Viðfirði og ábúandann á Borg Halldór Eiríksson.

Árin eftir slysið efldu Viðfirðingar landbúskap og stækkuðu bústofn sinn. Um 1950 komu snjóavetur og rigningasumur og jafnframt sýktist fjárstofn af blóðsótt sem drap stóran hluta lamba nýfæddan. Síðustu búskaparárin voru því erfið.

Hestasteinn í Viðfirði reistur til minningar um Guðríði Friðrikku Þorleifsdóttur síðustu húsfreyjuna í Viðfirði á hundrað ára árstíð hennar.

Á fimmta áratug 20. aldar fóru samgöngur milli Norðfjarðar og umheimsins að stórum hluta fram um Viðfjörð með siglingum til og frá Norðfirði. Þá var seldur matur og gisting í Viðfirði.

Rúta á hlaðinu eftir að vegurinn náði að bæ um 1940

 

Eldhúsið í Viðfirði í byrjun 21. aldar. Rekaviður til kyndingar, viðar og kolavél og lúgan sem kom í góðar þarfir við veitingasölu
error: Content is protected !!