Ég, Ína Dagbjört Gísladóttir á hugmyndina og ber ábyrgð á þessari heimasíðu. Sigrún Víglundsdóttir er síðugerðarkona. Margir hafa lagt til efni, myndir og yfirlestur. Tilgangur með þessu verki er að koma á einn stað fjölbreyttum upplýsingum um svæðið og er síðan ætluð söfnum, ferðafólki á sjó og landi og ekki síst þeim sem heima sitja. Það er vilji til þess að tengja upplýsingar um staði við 360 gráðu kort fljótlega, þar sem hægt verður að skoða land kringum örnefni.
Tilgangur minn er að síðan gefi mynd af eyðibyggðum í Norðfjarðarhreppi hinum forna á 20. öld og þokkalega mynd af menningarminjum og náttúru svæðisins. Hvernig var að búa í sveit við sjó, daglegt líf, menningarlíf, samgöngur, verkþekking, frásagnir, þjóðsögur og náttúrufar.
Texti af hálfu síðuhöfundar er einfaldur. Myndefni frá fyrri tíð er brotakennt og myndir sem kunna að vera til hjá afkomendum íbúanna og öðrum væru vel þegnar.
Frásagnir íbúa og annarra sem tengjast svæðinu eru veigamikill hvati til þess að vinna þessa síðu. Þar er þó mikið efni óunnið úr upptökum, vonandi verður það komið inn fyrir árslok 2026. Síðan býður uppá viðbótar möguleika til innsetningar efnis bæði frásagna, fræðslu og mynda. Hægt verður að vera í sambandi á Facebook síðu verkefnisins.
Styrkir frá eftirtöldum aðilum voru forsenda þess að vefurinn Kerlingaslóðir fór í loftið.
- Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, SÚN
- Hafnarsjóður Fjarðabyggðar
- Landsvirkjun
Einlægar þakkir.
Nafnið Kerlingaslóðir
Höfuð einkenni eyðisvæðisins eru tröllsleg umgjörð fjalla sem hlaðin eru úr basaltlögum og tröllanöfn á fjöllum og sögur þeim tengdar. Berggangar eru innskot sem ganga þvert á upprunalega bergstafla og mynda fjölbreyttar strýtur í fjöllum. Við sjóinn mynda innskotin umgjörð um lendingar og voga, og fallegir stapar rísa úr sæ.
Aðsópsmestar eru nokkrar kerlingar sem sögur fara af, steinrunnar nema sú sem í vættar líki veitti hinum frækna og glæsta Barða sem er þjóðsagnapersóna, viðnám úr Skollaskarði. Þær gæta leiða um Fjallaskörð og ríkja yfir eyðibyggðinni.
Tileinkun og þakkir
Ég var svo heppin að vera í heimavistarskólanum á Kirkjumel sem barn. Þá var farið að fækka börnum í heimavist, því að byggðin sunnan Grænaness var farin í eyði. Við Seldalskrakkarnir vorum í heimavist. Þann tíma vorum við hluti af fjölskyldunni sem þar bjó. Ég átti þar ákaflega góða vist hjá Bergljótu Einarsdóttur og Hálfdani Haraldssyni skólastjóra og með börnum þeirra. Frá Hálfdani er áhugi minn á sögum og sögnum af þessu svæði kominn. Hálfdan smalaði í Gerpinum, fór á refaveiðar og lagði hlustir við því sem gömlu mennirnir höfðu að segja, Hann var steinasafnari og hafði áhuga á öllu sem náttúran gaf. Hann safnaði þjóðsögum og skráði. Svo vann hann mikið verk við að safna því saman sem tilheyrði Norðfirði úr bókum og ritum. Samanlagt úr því safni og hans eigin safni varð bók með titilinn Norðfjarðarbók sem kom út hjá Bókaútgáfunni Hólum 2008.

Árið 2003, þá gekk Hálfdan með mér sem fararstjóra í hópi á vegum Ferðafélags Fjarðamanna í fimm daga gönguferð um eyðibyggðir gamla Norðfjarðarhrepps, þá var hann 76 ára gamall. Í þeirri ferð gistum við í húsunum í Viðfirði og á Barðsnesi. Í hópnum naut hann sín við frásagnir og spjall við ferðafélaga. Myndin var tekin af einni úr þeim hópi Ingu Rósu Þórðardóttur.
Ég tileinka Hálfdani Haraldssyni, fræðara mínum og vini þessa heimasíðu. Þegar ég hef verið efins um hæfni mína við síðugerðina hefur hann komið í hugann eða mig jafnvel dreymt þau hjónin skælbrosandi. Ég þakka af alhug það veganesti sem ég fékk á Kirkjumel.
Margir eru þeir sem ég þakka framlag til þessarar síðu. Ég þakka og minnist tveggja félaga minna úr námi austfirskra leiðsögumanna, þeirra Skarphéðins G. Þórissonar og Ingu Rósu Þórðardóttur. Loftmyndir og yfirlitsmyndir Skarphéðins eru gulls ígildi, myndir Ingu Rósu hafa yfir sér þokka og sterka tilfinningu fyrir náttúrunni. Þau hafa bæði kvatt jarðlífið langt um aldur fram.
Ég þakka frábærar stemningsmyndir Hallfríðar Ingimundardóttur. Ég þakka Skjalasafni Norðfjarðar fyrir nokkrar ómissandi myndir og Guðmundi Sveinssyni fyrir myndir frá byggingu á neyðarskýli í Sandvík og góða þjónustu. Ég þakka Guðrúnu Óskarsdóttur fyrir afar fallegar blómamyndir, Ég þakka Halldóri W. Stefánssyni, Hálfdáni Helgasyni, Laufeyju Þóru Sveinsdóttur, Sigrúnu Víglundsdóttur og Nikulási Kristjánssyni fyrir góðar myndir. Ómerktar myndir eru úr mínu myndasafni.
Ég þakka þeim Árna Hjartarsyni jarðfræðingi og Guðrúnu Á. Jónsdóttur gróðurvistfræðingi fyrir umfjöllun um jarðfræði og gróður svæðisins og þeim Hálfdáni Helgasyni og Halldóri W. Stefánssyni fyrir aðstoð við texta minn um dýralíf svæðisins og myndir. Einnig öðrum starfsmönnum Náttúrustofu Austurlands fyrir lán á efni og liðlegheit.
Sigrúnu Víglundsdóttur þakka ég gerð heimasíðunnar, hún hefur sýnt listræna hæfileika og einstaka þolinmæði við þetta verk.
Smára Geirssyni, Guðrúnu Á. Jónsdóttur, Árna Hjartarsyni, Arndísi Þorvaldsdóttur og Sigrúnu Víglundsdóttur þakka ég yfirlestur og góðar ábendingar.
Guðmundi Kr. Höskuldssyni þakka ég fyrir upptökur á hljóðfælum.
Jóni Sveinbjörnssyni þakka ég skemmtilega ferð til Sandvíkur til myndatöku og skoðunar á báti hans Nípu.
Eiginmanni mínum Víglundi Sævari Gunnarssyni þakka ég samfylgdina hálfan annan áratug við að taka þátt í því ævintýri sem áhugamál af þessu tagi er, yfirlestur texta og leiðbeiningar. Ótal ferðir á sjó og landi, ekki síst þær sem í blíðviðri voru farnar með ströndinni á Voninni.

Síðast en ekki síst þakka ég fólkinu sem síðast bjó á svæðinu og afkomendum þeirra. Þeim sem ég náði að kynnast og veittu mér ómetanlegar upplýsingar og gáfu mér nokkrir hlutdeild í lífi sínu og leifðu mér um leið að varðveita raddir sínar og frásagnir. Sérstaklega vil ég geta vinar okkar hjóna Þórðar Sveinssonar frá Barðsnesi, sem bauð okkur oft með á báti sínum þegar hann hlúði að húsinu á Barðsnesi. Af báti sem hann smíðaði og heitir Vonin eru fjölmargar myndir á síðunni teknar. Hann gaf okkur hlutdeild í Barðsnesi.
Efalaust hef ég gleymt að nefna einhvern sem þakka ber og biðst ég fyrirfram afsökunar á því.


