Gerpisskarð er önnur tveggja fær leið milli Vöðlavíkur og Sandvíkur, hin er um Tregaskarð.

Gerpisskarð var fáfarnara fyrr á tíð, þar sem leiðin var lengri og einnig villugjarnari. Í nútímanum þykir hún tilkomumeiri og greiðfærari, með geysilega fallegu útsýni. Leiðin liggur um slóð frá Vöðlum í Vöðlavík, um Vaðlaskriður upp í Gerpisdal. Þaðan upp bratt lækjargil sem sveigt er útaf til hægri uppá óljósa slóð sem liggur í krókum um grýttar brekkur upp í skarðið. Skarðið er aðeins örlítil lækkun á brún Gerpis sem er á hægri hönd. Á vinstri hönd er Skúmhöttur eitt besta útsýnisfjall svæðisins. Greið leið niður úr skarðinu niður að Sandvíkurvatni. Skammt fyrir neðan það er svokallað Snið, slóð um grýtta urð. Þegar urðinni sleppir liggur slóðin niður á láglendi. Fyrir miðri vík er neyðarskýli sem Björgunarsveitin Gerpir í Neskaupstað á og rekur.



