Gesina

Árið 1966 strandaði síldarskipið Gesina frá Kopervik í Noregi á miðjum sandi í Sandvík. Tólf manna skipshöfn bjargaðist öll.

Gesina strandaði 1966. Þessi mynd er frá 2003 þar sem sandurinn er á góðri leið með að grafa hana. Ljósm. Inga Rósa Þórðardóttir

Skipið sigldi upp í Sandinn og hallaði ekki um gráðu þar sem það stóð með fullfermi af síld.

Nú 2025 sést aðeins móta fyrir Gesinu í sandinum. Undrafljótt hefur hún grafist niður. Hversu hratt sandurinn hefur gleypt hana, segir okkur um leið sögu annarra skipa sem þangað hafa lent gegnum aldirnar.

error: Content is protected !!