Er nafn á smá klapparhrygg utan við Krókslæk. Á honum er grjóthrúga, þar sem gömul refagildra var af gáleysi eyðilögð eftir miðja 20. öld.

Refagildrur voru víða ekki langt frá bæjum og til þess fallnar að freista vaxinna ungrefa sem farnir voru úr grenjum. Til þess var notað úldið fiskislóg. Með því að fanga þá í gildruna náðust skinnin óskemmd en þau voru dýrmæt söluvara.

