Másstaðir

Norðurströnd Viðfjarðar. Nálægt miðju þessarar myndar má sjá móta fyrir fornbýlinu Másstöðum.

Másstaðir er fornbýli nálægt miðri norðurströnd Viðfjarðar. Sagan segir að jörðina hafi Freysteinn Fagri gefið Má leysingja sínum. Munnmæli eru um að hún hafi farið í eyði í skriðuföllum 1756. Lítil ummerki eru sjáanleg um býlið.

error: Content is protected !!