Tunga og Melhóll

Í Neskaupstað eru tvö hús sem byggð voru upphaflega í núverandi eyðibyggð Norðfjarðarhrepps. Neskaupstaður og Norðfjarðarhreppur sameinuðust 1992. Bæði húsin hafa hlaðið utan á sig viðbyggingum. Þau bera nöfnin Tunga og Melhóll

Tunga

Tunga

Bjarni Sveinsson frá Viðfirði byggði íbúðarhúsið Tungu þar skammt ofan við bryggjuna. Hann felldi það og flutti til Neskaupstaðar 1921. Tunga er nú í eigu dóttur hans, Unnar, sem býr þar við Hlíðargötu 4. Í Viðfirði var steyptur grunnur undir Tungu. Hann lenti að hálfu leyti undir aurskriðu sem féll 1968, sá hluti sem slapp við flóðið sést vel.

Melhóll

Melhóll

Á Barðsnesi skammt innan við núverandi bæ stóð hús sem nefndist Barðsnesholt. Húsið var fellt og viðir þess nýttir til að byggja húsið upp að nýju við Hlíðargötu 13 í Neskaupstað. Þangað komið fékk húsið nafnið Melhóll.

error: Content is protected !!