Viðfjarðarvegur

Neskaupstaður var stærsti þéttbýlisstaður á Austurlandi um 1930. Það kallaði á athugun og umræðu um hvernig mætti tengja hann þjóðvegakerfinu, en fyrsti bíllinn kom þangað með skipi 1925.

Lækjargil ofan við Viðfjarðarveg fyrir botni Dysjardals. Neðan vegar hleðslur frá upphaflega veginum. Vegurinn var hlaðinn fyrir dalbotninn með handafli og handverkfærum og hjálp burðarklára.

Á sumarþingi 1931 flutti Sveinn Ólafsson alþingismaður í Firði, tillögu um að taka væntanlegan Norðfjarðarveg í tölu þjóðvega. Sú tillaga var samþykkt á Alþingi 1933. Í kjölfarið komu fjárveitingar og hófst vegagerð frá Eskifirði til Viðfjarðar árið 1934.

Árið 1938, var vegurinn kominn út að Klifi í Viðfirði. Gert var hlé á verkinu og huga átti að áframhaldandi vegagerð til Norðfjarðar.

Dys á háskarðinu milli Vöðlavíkur og Viðfjarðar. Þjóðsaga um Spánverjavíg fylgir henni. Líklegt er að sagan hafa flust þangað sem flökkusaga og jafnvel að dysin sem er steinhrúga á harðri klöpp hafi verið vegkross í pápísku. Ekki hefur verið kannað hvað undir liggur.

Árið 1940 komust allir bílar til Viðfjarðar og 1942 var lokið vegalögn niður að sjó við Viðfjarðarbæ. Unnið var við endurbætur á veginum til 1945.

Efsti hluti Viðfjarðar, Skammidalur. Vegur um hann var einungis lagður með handverkfærum án hesta samkvæmt munnlegri heimild Reynis Zoega sem var verkamaður þar.

Ákveðið var að stofna til siglinga með báti milli Viðfjarðar og Norðfjarðar tvisvar í viku með fólk og flutning. Skipaútgerð Ríkisins var falið að koma aðstöðu í lag. Þeir sem sinntu þessum siglingum voru Óskar Lárusson á báti sem hét Hafþór frá 1941 til 1946 og Sigurður Lúðvíksson á Hilmi 1947 til 1948. Báðir voru bátarnir 23 lestir.

Hleðslur í vegkanti neðan við Skammadal í Viðfirði

1943 hóf Kaupfélag Héraðsbúa áætlunarferðir á rútu milli Viðfjarðar og Akureyrar sem tengdust ferjusiglingunum

Í tengslum við áætlunarferðir kom Guðríður Þorleifsdóttir húsfreyja í Viðfirði upp veitingaþjónustu.

Önnur kynslóð trébrúa á Viðfjarðará innan við Klif

1949 var opnaður vegur um Oddsskarð og þá hljóðnaði í Viðfirði

Viðfjörður frá Klifi. Bátur nýlagður frá bryggju. Bryggjan er lengst til vinstri á myndinni.
error: Content is protected !!