Gerpir

Glæsifjallið Gerpir er stafli af blágrýtislögum og skilur að Vöðlavík og Sandvík.

Gerpir úr Sandvíkurskarði


Ásmundur Helgason frá Bjargi segir í bók sinni “Á sjó og landi” frá því þegar hann 13 ára á færaskaki, gleymdi sér við að hugsa um, hversu góður vegghleðslumeistari Guð hefði verið að skapa svo vel mótað fjall.

Horft af Gerpiskolli eftir Barðsnesi og fjærst norður á Gletting


Góð fiskimið voru undir Gerpi og þangað sótt bæði sunnan og norðan frá, þó ekki væri alltaf gott í sjóinn.
Hamragarðar í Gerpi eru austasti oddi Íslands, en mörkin milli Sandvíkur og Vöðlavíkur eru á Bræðrasandi sunnar í fjallinu.
Í Gerpinum eru nokkrir hlaðnir garðar við færar rákir, til þess ýmist að forða kindum frá því að lenda í svelti eða að halda kálfum til beitar í svokallaðri Afrétt.

Gerpir úr austri. Ljósmynd: Skarphéðinn Þórisson
error: Content is protected !!