Gerðisurð eða Stórurð er unglegt berghlaup, ekki stórt en stórgrýtt, eins og nafnið bendir til. Mjög lítill jarðvegur er á því, en það er vísbending um lágan aldur.
Hinn fjölmenni lífsglaði hópur sem óx upp á Barðsnesbæjunum á 20. öldinni og taldi á fjórða tug, fann sér þar slétta flöt til að dansa og syngja á undir harmonikkuleik þegar færi gafst.

