Viðfjarðartaflið

Útskurðarmeistari og hönnuður þessa merka verks er Sófus Sveinsson í Viðfirði. Hann var sonur Sveins Bjarnasonar í Viðfirði, menntaðs smiðs bæði á tré og járn og afburða hagleiksmanns og konu hans Ólafar Þórarinsdóttur frá Randversstöðum í Breiðdal. Efniviðurinn er birki frá Hallormsstað. Smíði þess hóf Sófus fjórtán ára gamall, en átti eftir að smíða taflborðið þegar hann lést tuttugu og sjö ára. Hann átti við veikindi að stríða og hafði ekki fulla starfsgetu síðustu árin. Hann fórst í sjóróðri 1. Okt. 1936 ásamt tveimur bræðrum sínum Þórarni og Frímanni og nágranna Halldóri Eiríkssyni.

Ríkarður Jónsson skrifar um listamanninn og taflið í Morgunblaðinu 21.4. 1935 og segir þar “Sófus Sveinsson er gersamlega ólærður maður í þessari ment og ekki hefur hann borið önnur verkfæri en tálguhníf að birkihniðjum sínum”og seinna í greininni skrifar hann “en hjer er ekki hagleikurinn einn saman, heldur er alt af mikilli hugsun og viti gert”

Viðfjarðartaflið

Árið 1939 var Viðfjarðartaflið sent sem framlag Íslands á heimssýninguna í New York.

Í Vísi þriðja júlí 1947 er greint frá því að taflið sé til sýnis í Sýningarglugga Jóns Björnssonar og Co við Ingólfsstræti í Reykjavík. Þar fylgir að taflið sé til sölu.

Viðfjarðartaflið

Taflið komst síðar í vörslu Þjóðminjasafns Íslands sem lét Náttúrugripasafnið Í Neskaupstað fá það til sýningar árið 1994. Safnið fékk Hlyn Halldórsson á Miðhúsum á Héraði til að smíða viðeigandi taflborð undir það. Þar sómir það sér vel.

error: Content is protected !!