Bygging neyðarskýlis í Sandvík

Árið 1961 byggðu Norðfjarðarhreppur og Kvennadeild Slysavarnarfélagsins í Neskaupstað skýli í Sandvík sem var ætlað það tvíþætta hlutverk að vera hús fyrir smala og neyðarskýli.

Bygging neyðarskýlis í Sandvík árið 1961. Ljósm. Guðmundur Sveinsson

Partur, sem þá var að falli komin hafði gegnt þessu hlutverki fram að þessum tíma. Valið var besta veður og var alger kyrrð við Stekkafjöru. Bundu menn timbrið í búnt og drógu í land og báru það svo upp á Kvíamel.

Frá byggingu neyðarskýlis í Sandvík árið 1961. Ljósm. Guðmundur Sveinsson

Báturinn Dröfn fór í þessa fyrstu ferð. Það tók nokkra daga að smíða húsið og nokkrir bátar til viðbótar lögðu verkefninu lið.

Á landleið N-Sandvík árið 1961. Ljósm. Guðmundur Sveinsson

Á myndunum sem Guðmundur Sveinsson tók, sjást sveitamenn, hópur frá Björgunarsveitinni Gerpi og fleiri sem komu að þessu þarfa verki. Björgunarsveitin Gerpir á nú húsið sem er vel búið til að taka við fólki í neyð.

Neyðarskýlið á Kvíamel árið 2004.
error: Content is protected !!