Vogatangi

Á Vogatanga var selalátur að sögn Hálfdanar Haraldssonar sem vitjaði þess um mörg ár eftir 1950. Hann taldi dýrin hafa verið sextíu til áttatíu. Tómas Zoega staðfesti að sú tala gæti staðist, en hann átti þarna leið um á vegum Björgunarsveitar Gerpis.
Hringormanefnd var stofnuð af stjórnvöldum 16. ág.1979. Hún verðlaunaði veiðimenn fyrir hvern drepinn sel og gekk fljótt á stofninn.
Nú eru fáir selir við ströndina. Örnefni eins og Selasandur undir Skollaskarði og Selavogur undir Hornfonti minna á stærri selastofn og það gera einnig fornar þjóðsögur.

error: Content is protected !!