Mónes


Er grasi vaxinn tangi sunnan við Mónesskarð, sem liggur á milli Vatnshóls og Hornseggja og þaðan í brattri brekku niður á nesið. Þaðan er fært ofan í fjörur til beggja átta.
Til suðurs eru tveir forvaðar sem fært er fyrir á háfjöru og sléttum sjó. Á milli þeirra er Byggðasandur en syðst Selasandur. Út af Mónesi eru klettarif sem nefnast Mónestangar. Fjörurnar norður af Mónesi eru einstaklega litskrúðugar og fagrar.

Í Mónesfjöru og framundan eru Grenissandur og Marteinsbrík. Ljósmynd Hallfríður Ingimundardóttir
error: Content is protected !!