Keppingur er sker beint út af Barðsneshorni.
Í Sandvík eru góð fiskimið og hafa Norðfirðingar ávallt róið þangað til fiskjar, bæði á árabátum og vélbátum.
Út af Horninu er Hornsröst sem reynir á færni sjómanna og þekkingu á svæðinu. Reru sjómenn á árabátum knálega til að nýta sér rétt fall til að ná fyrir Horn og þaðan er líklega Keppingsnafnið komið.

Hornstapi er klettadrangur norður undir Hornfonti. Stapinn er steinrunnin tröllkarl Gerpir að nafni.

