Rauðubjörg

Rauðubjörg eru litfögur líparítbjörg, áberandi séð frá Neskaupstað. Þau glóa sem gull í sólskini og eru augnayndi. Í nærsýn eru þau og umhverfi þeirra ævintýraland.

Horft niður í Rauðubjörg af brún


Innst við Rauðubjörg mætist gullið líparítið og stuðlað basalt. Út í sjóinn innan við þau gengur Hellisfjörukambur sem er stuðlaður berggangur. Hann myndar tröllsandlit frá ákveðnu sjónarhorni. Í hliðum kambsins er rituvarp og nokkrir múkkar verpa einnig í stuðlaberginu.

Tröllkarl með ritu í vöngum. Hann er endi Hellisfjörukambs


Í Helli innan kambsins er smáreki. Í honum var sprengt til að leita að nýtilegum kolum 1901. Eftir athugun í Danmörku og Bretlandi reyndust þau ekki nægilega orkurík til vinnslu. Í tengslum við nýtingu þeirra voru uppi hugmyndir um hafnargerð við Æðarsker. Til eru samningar um réttindi til námavinnslu sem giltu fram á 21. öld.

Æðarsker
error: Content is protected !!