Vatnshólstjörn er sérkennileg tjörn nokkuð djúp, rétt austan við mosavaxinn topp Vatnshóls. Hvorki sést til rennslis að eða frá henni. Vatnshóll er fjallið milli Skollaskarðs og Mónesskarðs. Af honum er eitthvað stórfenglegasta útsýni á öllu svæðinu. Gerpir í suðri, Glettingur og Víknafjöll í norðri, fjöll inn af Norðfjarðarflóa, Tignarleg Norðfjarðarnípan og Dalafjöllin í Mjóafirði.

