Síðustu ábúendur í Viðfirði

1: Borg, byggð 1925 að hluta úr gamalli fjárborg.
Fjárhús, hlaða og íveruhús sambyggt. Neðan við lítið hús sem hýsti lömb og hænur.
Einungis búið árin 1926-1936.
Eini ábúandinn: Halldór Eiríksson 19.01. 1877 -21.10. 1936.

2: Viðfjörður
Eyðiár 1955
Síðustu ábúendur:

1.Hjónin Guðríður Friðrikka Þorleifsdóttir 04.11.1908 -14.10.2000 og Þórarinn Viðfjörð Sveinsson 08.07.1902- 02.10.1936.
Þeirra börn: Sveinn, Þorgeir, Ólöf Erla og Freysteinn.
Seinni maður Guðríðar: Guðni Þorleifsson 04.10.1914 -10.10.2002.
Þeirra barn: Þórarinn Viðfjörð Guðnason

2.Sesselja Sigríður Sveinsdóttir 26.03. 1899 -27.02.1989, ekkja eftir Karl Henning Hjelm frá Örebro í Svíþjóð 04.03.1883- 1950.
Þeirra börn: Karl Freysteinn og Friðþór Sófus.

3: Klif
Eyðiár 1882
Síðustu ábúendur: Davíð Jónsson 22.10. 1822 -12.12.1892. og Guðrún Illugadóttir 15.12.1816 -04.02. 1894.

error: Content is protected !!