Norðfjarðarhornsviti á Gullþúfu var smíðaður 1964.
Steypan í pallinn var hrærð á Bakkabökkum í Neskaupstað og flutt með þyrlu á áfangastað. Ofan á steypupall, var fest fjögurra metra hátt stálhylki.

Fyrst var notað gas til að tendra ljós hans en seinna rafhlaða.
Klappirnar kringum Gullþúfu heita Gullþúfuklappir. Undir Hornfonti er lítill vogur sem nefnist Selavogur.

