Síðustu ábúendur á Suðurbæjum

1: Barðsnes 2/3 Barðsneseignarinnar
Eyðiár 1955
Síðustu ábúendur: Sigríður Þórðardóttir 14.11. 1899. – 29.10. 1988, ekkja Sveins Árnasonar 29.06.1889. -11.10. 1947.
Börn þeirra: Þorbergur, Þórður, Árni Guðgeir, Ólafur, Guðrún, Alda Ármanna, Ingólfur Steinar, Auður og Ingunn.

2: Gerði (Barðsnesgerði) hjáleiga frá Barðsnesi 1/6 hluti af Barðsneseigninni.
Eyðiár 1955

Frá 1918 voru Guðbjörg Halldórsdóttir f. 04.12.1894 d.12.09.1976 og Guðmundur Halldórsson f.25.12.1981 d.29.04.1976 ábúendur og eigendur að Gerði.

Þeirra börn; Ásgeir H., Emil S., Helgi S., Guðrún O., Ingvar Sigurður., Ólína, Magnús, Hjalti, Sigríður S., Karl G., Ásdís, Jósep, Svavar, drengur sem dó skömmu eftir fæðingu.

Guðbjörg og Guðmundur fluttu til Hafnarfjarðar 1954 ásamt fjölskyldu, en Svavar sonur þeirra hirti sauðfé á Gerði veturinn 1954 til 1955

3: Gerðisstekkur (Barðsnesgerðisstekkur) hjáleiga og hálflenda Barðsnesgerðis 1/6 hluti Barðsneseignarinnar

1944 til 1949
Halldóra Jónsdóttir 09.07.1891 – 07.01.1970, ekkja Bjarna Sigfússonar 27.02.1885 -26.09. 1941
Þeirra börn: Guðný, Sigríður, Guðfinna, Kristbjörg, Jón S. dó ungur, Bjarni Halldór, Ragnar K., Guðmundur, Hermann, Óskar og Sverrir.

Ari Þorleifsson 03.11.13 og Guðný Bjarnadóttir frá Gerðisstekk 19.03.15 Komu frá Sandvíkurseli

Eyðiár 1952

Árin 1949 til 1952 Ingvar Sigurður Guðmundsson frá Gerði f.25.10.1923 d.16.11.1953 og kona hans Margrét Vilhjálmsdóttir f. 2.9. 1927.

Húsið á Gerðisstekk var rifið niður 1952 og flutt til Hafnarfjarðar

Ingvar Sigurður drukknaði ásamt Jósep bróður sínum á mótorbátnum Eddu í Grundarfirði 16.11.1953.

4: Merki (í landi Stuðla, byggt um skamman tíma og einnig kallað Árnatótt)
Einungis búið þar frá 1914-1917. Húsið var flutt í Barðsnes.
Einu ábúendur:Hjónin Árni Oddsson frá Vestmannaeyjum og Sigurbjörg Sigurðardóttir

5: Stuðlar
Bærinn fluttur innfyrir Stuðlaá og byggt hús ofan við Skipafjöru 1907.
Litlu ofar þess bæjar var búið á Grundarhúsum. Síðast bjuggu þar Jón Þorsteinsson og Ingibjörg Davíðsdóttir.
Eyðiár 1955
Vilhjálmur Halldórsson 06.01. 1893 -20.11. 1957 og bróðir hans Helgi Halldórsson 04.11.1896. – 13.05. 1976.

error: Content is protected !!