Minjar um kirkjur, bænhús og kirkjugarða
Í Mið Sandvík var bænhús að minnsta kosti fram undir 1700. Miklar líkur eru á, að það sé kirkjugarður vestan við Part í landi fornbýlis sem nefndist Mið Hjáleiga.
Í Sandvíkurskarði er sylla sem nefnist Líkhellir. Þar þurfti stundum að geyma lík þeirra sem létust um vetrartíma. Greftrað var á Skorrastað í Norðfirði, fimm kílómetra frá sjó
Barðsnes, þar var bænhús, sem er getið í annálum vegna sakamáls 1686 og merkt tóft eftir munnmælum.
Í Hellisfirði (býli) var hálfkirkja fram yfir miðja 18. öld og kirkjugarður
Skálaklappir

Skálaklappir eru ágæt afköst austan megin í Skálabás. Þar var gert að afla og hann saltaður, en fluttur á Norðfjörð til þurrkunar, meðan Norðfirðingar gerðu út frá Skálum.
Ofan klappanna er klettarani sem er göngufær upp undir verbúðarústirnar.
Frá rústunum lá kerruvegur norður yfir Sandvíkurá til Sandvíkurbæja.
Stríðsminjar

Eftir seinna stríð, fann Þórður Sveinsson á Barðsnesi þessar vélbyssukúlur í mold við Vatnshól. Taldi hann þær komnar frá flugvélum. Árið 2023 voru Stríðsárasafninu á Reyðarfirði afhentar þær af Víglundi Gunnarssyni og Ínu Dagbjörtu Gísladóttur, en Þórður fól þeim varðveislu þeirra.
Máríuver og Máríuversbás
Skammt innan við Rauðubjörg eru fornar verbúðarústir talsvert umfangsmiklar og nefnast Máríuver.

Neðan við rústirnar er lendingin Máríuversbás. Um þennan stað eru litlar heimildir. Nafnið kennt við Máríu guðsmóður bendir til þess að fátæklingar hafi notið þess á einhvern hátt.
Gildruhraun
Er nafn á smá klapparhrygg utan við Krókslæk. Á honum er grjóthrúga, þar sem gömul refagildra var af gáleysi eyðilögð eftir miðja 20. öld.

Refagildrur voru víða ekki langt frá bæjum og til þess fallnar að freista vaxinna ungrefa sem farnir voru úr grenjum. Til þess var notað úldið fiskislóg. Með því að fanga þá í gildruna náðust skinnin óskemmd en þau voru dýrmæt söluvara.
Másstaðir

Másstaðir er fornbýli nálægt miðri norðurströnd Viðfjarðar. Sagan segir að jörðina hafi Freysteinn Fagri gefið Má leysingja sínum. Munnmæli eru um að hún hafi farið í eyði í skriðuföllum 1756. Lítil ummerki eru sjáanleg um býlið.

