Verstöðin Skálar

Frá 1909 til 1933 gerðu Norðfirðingar út frá Skálum

Þeir byggðu sér sjóbúðir við hlið búða heimamanna, sem einnig nýttu sínar fyrir birgðageymslur.

Árið 1924 voru 13 árabátar gerðir út frá Skálum og við þá unnu um 60 manns. Sameinuðu verslanirnar á Norðfirði voru stórtækastar, gerðu út þrjá til fjóra báta og verkuðu fisk 1917-1926.

Frá verstöðinni var einungis róið á árabátum, langflestum með færeysku lagi og fiskað á handfæri.

Árið 2003 við rústir verbúða á Skálum. Brött brekka frá klöppunum að verbúðum sem stóðu á brún Votabáss og Skálabáss.
error: Content is protected !!