Búsmali, beit og heyskapur

Á meðan búseta var á eyðisvæðum í Norðfjarðarhreppi voru þar hefðbundin húsdýr, kindur, nokkrar kýr og hestar til flutninga og reiðar, hundar og kettir. Túnblettir, engjar og beitilönd fyrir búsmala. Flestir áttu hænur sem átu matarleifar og gáfu egg sem voru holl fæða og einnig nauðsynleg fyrir kökubakstur.

Sandvík fór í eyði 1947. Eftir það var beitt þar frá Suðurbæjum. Þegar að búskapur lagðist af í allri núverandi eyðibyggð1955 var beitiland Sandvíkur, Suðurbæja, Viðfjarðar og Hellisfjarðar nýtt af bændum í Norðfjarðarsveit sem sáu frá þeim tíma um fjallskil.

Allt að 3.500 fjár voru reknar að hausti til Norðfjarðar af öllu svæðinu um Hellisfjarðarskriður. Tilkomumikil sjón var að sjá fjársafnið koma á Götuhjalla og mynda óslitið rennsli innundir Borgir.

Tún á Suðurbæjum voru eitthvað nytjuð fyrstu árin eftir að búsetu lauk af fjáreigendum á Norðfirði. Vigfús Einarsson frá Fannardal átti Farmal Cub traktor með sláttuvél sem hann notaði eftir að hann flutti frá Fannardal. Traktorinn var fluttur á vörubílspalli til Viðfjarðar. Þaðan var honum ekið út á Suðurbæi og túnblettir slegnir. Síðan var heyið þurrkað, bundið í bagga og flutt með bátum yfir Norðfjarðarflóa.

Á síðari hluta níunda áratugs tuttugustu aldar var sauðfé í Norðfjarðarsveit að mestu skorið niður vegna riðu. Eftir að beit hætti hefur blómgróður aukist á eyðisvæðinu, melar þakist gróðri og hvönn vaxið á túnum.

Ofan við Rauðubjörg, vaxandi gróður eftir beitarlok

Á árunum 1950 til 1968 áttu Guðjón Hermannsson í Skuggahlíð og Hermann Þorleifsson á Hofi í Norðfjarðarsveit hestastóð í Sandvík. Upphaflega var fluttur þangað hryssuhópur ásamt graðhesti sem var fenginn frá Ytra Dalsgerði í Eyjafirði. Markmiðið var kjötframleiðsla. Þrátt fyrir erfitt tíðarfar var stóðið í Sandvík til 1968.

Hryssum var fækkað smám saman og síðustu árin voru hestarnir í Hellisfirði um vetrartímann. Auk búdrýginda af kjöti komu nokkrir ágætir reiðhestar úr Sandvíkurstóðinu.

Dýrin voru rekin á Norðfjörð til slátrunar og annarra nota og fólki þótti gaman að fylgjast með þessum tígulega hóp.

error: Content is protected !!