Árið 1937 fann Sveinn Árnason bóndi á Barðsnesi merkan grip í kartöflugarði fáeina metra vestan við íbúðarhús. Gripurinn er kambur steyptur úr bronsi, kirkjukambur sem prestar notuðu fyrir helgihald. Kamburinn er annar tveggja af þeirri gerð sem fundist hefur á Íslandi og talinn vera frá 12. öld eða byrjun 13. Aldar. Í bókinni Gersemar og Þarfaþing í Þjóðminjasafni er leitt að því líkum að ef til vill sé hann mun eldri og þá til marks um helgihald miklu fyrr en vitað er. Eina skráða þekkta heimildin um bænhús á Barðsnesi er frá árinu 1686.


