Lagt er af stað upp hlíðina utan við Sandvíkurpart. Slóðinn sveigir til vinstri undir Bæjarhjalla og liggur skáhallt inn í Kerlingarbotna og þaðan til hægri út í skarðið. Að norðanverðu eru talsverðar hleðslur og vegalögn fyrir hesta.

Niður háar Skarðskinnar liðast göturnar í ótal beygjum niður á Sólveigarhnaus og þaðan niður brattar brekkur að Stuðlum. Á veginum um Sandvíkurskarð, bæði slóðanum undir Bæjarhjalla Sandvíkurmegin og norðan við Skarðið og niður í Skarðsbotn eru einu manngerðu vegalagnirnar á eyðisvæðinu frá fyrri tíð.



