Lagt er af stað upp hlíðina utan við Sandvíkurpart. Slóðinn sveigir til vinstri undir Bæjarhjalla og liggur skáhallt inn í Kerlingarbotna og þaðan til vinstri upp í skarðið. Kerlingin í Kerlingarskarði er ákaflega tíguleg og stendur á rauðum dregli. Hún hefur notið þeirrar virðingar að hafa prýtt göngukort hjá Ferðafélagi Fjarðamanna og auk þess verið klifin af Arngrími Blöndal og félögum fyrir allnokkru síðan. Frá henni liggur mjó rák sem liggur að upptökum Stuðlahnausa og er gata ofan við Hnausana. Innar liggur svo leið um Valsmýri og niður til Viðfjarðar. Fjallstindur er á milli Sandvíkurskarðs og Kerlingarskarðs sem er nafnlaus. Vestan við Kerlingarskarð er Kjölur


