Gerpisskarð er önnur tveggja fær leið milli Vöðlavíkur og Sandvíkur, hin er um Tregaskarð.

Í Tregaskarð er farið frá Vöðlum í Vöðlavík. Það liggur á milli Skúmhattar í austri og Einstakafjalls í vestri og liggur leiðin upp Tregadal en fyrir botni hans er Tregaskarð, Til að komast yfir þarf fangbrögð við Tregaskarðskerlingu sem hefur aðeins mjótt bil milli sín og bergstálsins og af þrengslunum fékk það nafn sitt. Að norðan verðu er smá klifur niður til Sandvíkur. Varðandi rötun er það þekkt að hvinur í bakskoru kerlingar hefur bjargað lífi og limum ferðalanga. Niður í Sandvík er annað hvort farið norður fyrir á og út að norðanverðu eða suður undir Sandvíkurvatn og niður Snið um Klapparhjalla sem liggur fyrir botni Sandvíkur. Ófært er niður af honum nema á þessum tveimur stöðum.



