Mónesfjörur, Grenisandur og Marteinsbás

Í Mónessfjöru á leið að Grenissandi. Ljósm. Hallfríður Ingimundardóttir

Utan við Mónesfjörur tekur Grenisandur við. Utan við hann er klettanef sem gengur út í sjó og heitir Marteinsbrík. Klifur niður í Marteinsbás að austan verðu, hálar klappir og ófært í brimi.

Á leið yfir Marteinsbrík. Þar þarf að fara gætilega. Ljósm. Sigrún Víglundsdóttir

Eftir Grenisandi er best að ganga á fjöru og sem lengst frá bergstálinu, en líparít klofnar auðveldlega og hætta er á steinkasti. Það gildir líka um Marteinsfjöruna norðan við Brík.

Grenissandur. Ljósm. Hallfríður Ingimundardóttir

Um þetta svæði er ráðlegt að fara í fylgd leiðsögumanna.

Í Marteinsbás. Þarna hrynur stundum og jafnvel stórar fyllur Ljósmynd Hallfríður Ingimundardóttir

Marteinsbás geymir í bergstálinu koluð tré frá Tertíer tímabili jarðsögunnar og undurfallega náttúru.

Nýir kolaðir stofnar að birtast eftir hrun stærstu steingervinga fyllunnar í Marteinsbás.
Litasinfónía
Steinar í fjörubolla
error: Content is protected !!