Samantekt: Ína Dagbjört Gísladóttir
Bærinn á Barðsnesi stendur skammt frá sjónum. Allt umhverfi hans er þrungið sögu bæði í minjum um forna verkmenningu og rústum, en einnig dulúð heillandi náttúruforma. Sú er trú manna að neðan við bæinn, í kletti fagurlega skreyttum skófum, búi álfkona sem haldi verndarhendi yfir bænum og þeim sem um Barðsnesið fara. Síðasta húsfreyjan á Barðsnesi var viss um vernd hennar og vegfarendur hafa séð bregða þar fyrir ljósi, sem er til marks um að eftir þeim sé litið.
Þessa vísu bjó ég til er ég sat hjá bústað álfkonunnar ein í næturkyrrð:
Á bjartri nótt við bústað þinn,
blíður verndarmáttur,
um óttu heillar huga minn
og hafsins andardráttur

