Samkvæmt munnlegum heimildum Þórðar Sveinssonar frá Barðsnesi, fékk básinn nafnið af því að skútusjómenn (Hollendingar voru kallaðir Duggarar) sóttu þangað neysluvatn. Í Ófærabás rétt utan við Duggarabás, rennur ysti lækurinn á nesinu til sjávar. Ef til vill hefur víxlast nafnið á milli Duggarabáss og Ófærabáss í örnefnaskráningu.

Í sjónum við fjöruborð Ófærabáss, er fallegur snúinn stuðlabergsstapi sem heitir Hallandi stapi.
Básarnir milli Ytra og Innra Móanefs eru fimm. Samkvæmt örnefnaskrá heita þeir í röð utan frá; Kvíabás, Illibás, Ófæribás, Duggarabás og Stekkabás.

Þorgrímsstapi rís úr sjó skammt undan Ytra Móanefi. Falleg náttúrusmíð. Honum er tengd þjóðsaga.

