Glæsifjallið Gerpir er stafli af blágrýtislögum og skilur að Vöðlavík og Sandvík.

Ásmundur Helgason frá Bjargi segir í bók sinni “Á sjó og landi” frá því þegar hann 13 ára á færaskaki, gleymdi sér við að hugsa um, hversu góður vegghleðslumeistari Guð hefði verið að skapa svo vel mótað fjall.

Góð fiskimið voru undir Gerpi og þangað sótt bæði sunnan og norðan frá, þó ekki væri alltaf gott í sjóinn.
Hamragarðar í Gerpi eru austasti oddi Íslands, en mörkin milli Sandvíkur og Vöðlavíkur eru á Bræðrasandi sunnar í fjallinu.
Í Gerpinum eru nokkrir hlaðnir garðar við færar rákir, til þess ýmist að forða kindum frá því að lenda í svelti eða að halda kálfum til beitar í svokallaðri Afrétt.


