Bænhúsið á Barðsnesi

Samkvæmt munnmælum sem lifðu til síðustu ábúenda, stóð bænhúsið á Barðsnesi á þessum stað. þórður Sveinsson, sem þar bjó til 1955, merkti rústina, sem sést á meðfylgjandi mynd.

Ég hef aðeins eina heimild sem tengist beint bænhúsi á Barðsnesi. Hún er í bók Ingu Huldar Hákonardóttur “Fjarri hlýju hjónasængur”, sem kom út 1995. Fjallar heimildin um dulsmál. Bóndinn Jón Þorláksson á Barðsnesi barnaði vinnukonu sína Ólöfu Sigurðardóttur. Þetta var hans þriðja hórdómsbrot og dauðarefsing vofði yfir. Eiginkona hans Vilborg tók á móti barninu, en Jón gróf það sveipað líni, niður í gólfið á gömlu bænhúsi á Barðsnesi. Konurnar sluppu með hýðingu en Jón var höggvinn á Alþingi 1686.

Eignir hans að greiddum skuldum töldust samtals 465 álnir, svo sem 23 kindur. Af þingskjölum virðist sem eitt barna hans sé á lífi, sagt fætt utan hjónabands og “gangi bjargþrota”, en fær nú allan arf eftir föður sinn, ekki eiginkonan.

Auk álnanna skildi Jón eftir sig tvö gömul pappírsblöð með galdrastöfum svo að hann hefur að auki fengist við kukl. Annar stafurinn er fyrir þann sem rær til fiskjar og vill veiða vel. Hinn stafurinn beinist að velgengni í kvennamálum.

error: Content is protected !!