Í Borgarkrók eru einu heillegu naustin sem vitað er um í eyðibyggðum Norðfjarðarhrepps hins forna. Þau tilheyrðu bæjum sunnan Norðfjarðarár í Norðfjarðarsveit. Virkilega falleg og blasa við þeim sem rennir yfir í krókinn á litlum báti eða gengur þangað úteftir frá Grænanesi.

