Stuðlahnausar eru um 1000 m breitt berghlaup sem fallið hefur um 1800 m vegalengd allt frá fjallseggjunum sitt hvoru megin við Kerlingarskarð og í sjó fram. Þá hefur skarðið og Kerlingin sjálf orðið til.
Neðansjávar teygir hlaupið sig vafalítið eitthvað út frá ströndinni. Berghlaupið er greinilega gamalt og gæti verið frá ísaldarlokum, eða 10-11 þúsund ára. Það sést mjög vel frá Norðfirði, einkum þegar það er snævi þakið.
Heillandi hlauplandslag ofan við hraunjaðarinn. Um hann er góð gönguleið frá Viðfirði í Kerlingarskarð og áfram í Sandvíkurskarð.

