Nesið er í landi Sveinsstaða. Sunnan við nesið liggur einstigi út í afrétt undir Nöfum, þar sem auðvelt er að girða fyrir búpening. Einnig eru óljósar sagnir um útróðra Héraðsmanna úr Nesinu, en engar sjáanlegar minjar.

Í berginu utan við nesið eru ákaflega fallegar steinmyndir og gaman að sigla framhjá því. Gjálp er skrautlegur gatklettur og skerin út af nesinu kallast Stampar.

Af Hellisfjarðarnesi sést sólin koma upp úr hafi meðan dagur er lengstur.
Hægt er að lenda á norðanverðu nesinu í stilltum sjó.

Í um tvö hundruð metra hæð liggur gatan milli Hellisfjarðar og Norðfjarðar um Sneiðinga upp á Götuhjalla. Austur af Hjallanum eru Sandar . Af Götuhjalla liggja Hellisfjarðarskriður niður á Búland. Gatan er brött efst og tæp um Illagil. Þar er ófært gangandi meðan snjór er í giljum nema á broddum.

Norðan við Hellisfjarðarnes eru básar og fjörur sem stálpuð börn og ungmenni á Norðfirði, reru til á skektum í góðum veðrum fram á seinni hluta 20. aldar.



