Mölin, Hringurinn og Knarrarsker

Mölin nefnist falleg stór malarfjara neðan við bæinn á Barðsnesi. Sagan segir að þangað hafi jólasveinarnir komið siglandi á báti og grafið hann niður í fjöruborðið. Á dimmum kvöldum jólaföstu var grannt hlustað eftir þruski og þótti börnunum vissara að kíkja undir rúmin, því að sveinkarnir leyndust í húsunum.

Ofan við Mölina er grasbali sem nær uppundir bæ og nefnist Hringurinn. Hann var sleginn einu sinni á sumri, en eftir það hafði síðasti barnahópurinn á Barðsnesi Mölina og Hringinn sem sitt leiksvæði.
Að innanverðu í Hringnum er bústaður Álfkonunnar á Barðsnesi. Stór steinn vaxinn svörtum rósum úr litunarmosa.

Knarrarsker er tangi innan við Mölina, eyja á flóði. Upp að honum er oft lagst í góðu veðri til að koma fólki í land. Einnig var landað þar fiski í sjóhús sem nefndist Malarhús í sléttum sjó.
Innan við Knarrarsker er Krossfjara. Henni lokar Krossfjöruhali að vestan.

error: Content is protected !!