Valur, Valsmýri

(Almenn sögn í Norðfirði)

Sagnakver Dr. Björns Bjarnasonar frá Viðfirði, önnur útgáfa, annað bindi 1935

Eitt sinn í fornöld var fjandskapur með bónda einum í Sandvík og þeim manni, er þá bjó að Viðfirði; sá bær stendur fyrir botni Viðfjarðar. Svo kom að lokum að Sandvíkurbóndinn stefndi saman öllum Víkurbúum og vildi hefna harma sinna á Viðfirðingum. En honum kom njósn af þessari ráðagjörð, og efldi flokk á móti þeim; komu þar til liðs við hann menn af öllum bæjum í kálkinum, Mástaðamenn, Barðsnesingar og Stuðlamenn. Fundur þeirra og Víkurmanna var á mýri á hjalla einum miklum, er liggur miðhlíðis í fjallinu sunnan megin fjarðarins. Óljósar sagnir eru um, hvernig fundinum hafi lyktað, en flestir telja að Viðfirðingar hafi borið sigur úr býtum eptir að mikið mannfall hafði orðið af hvorumtveggja. Á harðvellisbala neðanvert við mýrina þykir mega sjá votta fyrir dysjum og er þar kallaður Valur en mýrin Valsmýri. Fyrir allmörgum tugum ára kvað hafa fundizt spjótsoddur og ístað fornlegt úr kopar.

error: Content is protected !!